FIDE birti ný at- og hraðskákstig 1. mars s.l. Engar breytingar á efstu sætum en Baldur Thoroddsen, Igor Trzonek og Dagur Ragnarsson hækka mest.
Hraðskák
Stigahæstu skákmenn og skákkonur
Vignir Vatnar Stefánsson (2540) er stigahæstur skákmanna þrátt fyrir að hafa tapað 14 stigum í mánuðinum. Olga Prudnykova (2116) er stigahæst skákkvenna
Ungir og gamlir
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2261) er hæstur af yngri kynslóðinni en þeir fjórir sem koma á eftir honum á listanum hækkuðu allir um yfir 40 stig í mánuðinum. Helgi Ólafsson (2413) náði toppsætinu á vizkualdrinum með 18 stiga tapi Hannesar Hlífars Stefánssonar (2401).
Atskák
Stigahæstu skákmenn og skákkonur
Þröstur Þórhallsson (2463) er stigahæstur skákmanna og Lenka Ptácníková (2111) er stigahæst skákkvenna en fáir á topplistunum voru virkir í mánuðinum.
Ungir og gamlir
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2287) er stigahæstur af U20 eins og í hraðskákinni en tveir stigahæstu á vizkualdrinum eru þeir sömu og eru efstir skákmanna á öllum aldri, Þröstur og Hannes Hlífar.
Breytingar
Í atskák hækkaði Akureyringurinn Baldur Thoroddsen (1570) um 125 stig. Í hraðskák náðu tveir meira en hundrað stiga hækkun Igor Trzonek (1597) hækkaði um 171 stig og Dagur Ragnarsson (2368) hækkaði um 121 stig sem er mjög gott með hjá jafn stigaháum manni.
Duglegustu skákmenn
Arnar Milutin Heiðarsson (2104) tefldi mest í atskák í mánuðinum og lagði þar sem grunninn að sigri sínum í febrúarmótaröð TR og TG. Kristján Örn Elíasson (1930) tefldi mest í hraðskák.
Nýir á lista
Nökkvi Már Valsson (1649) kemur stigahæstur inn á lista í atskák á meðan Jón Kristinsson (2083) kom mjög stigahár nýr inn í hraðskák eftir flottan árangur í hraðskákkeppni taflfélaga.