Íslensku krakkarnir luku í dag leik á Tólfta Chessmates mótinu í Jórvík. Gengið hefur verið upp og ofan en liðið endaði á að gera jafntefli við sveit Mónakó í lokaumferðinni. Reynslubankinn fékk væga innlögn eins og vera ber!
Viðureignin varð æsispennandi og endaði 5-5. Snemma virtist viðureignin ætla að verða vænleg fyrir Ísland. Þrátt fyrir að fyrsti punkturinn færi til Mónakó stóðum við vel á mörgum borðum og kom á daginn að Tristan Fannar, Sigurbjörn, Markús og Guðrún náðu sigri í sínum skákum. Tristan Nash og Katrín gerðu jafntefli og jafnteflið hjá Katrínu kom eftir ævintýralega baráttu í töpuðu endatafli!
Sigurbjörn tefldi eins og herforingi gegn Fiorinu Berzovsky sem hefur mikla reynslu af að keppa fyrir Mónakó á ólympíuskákmótum. Mistökin að opna skálínuna til hróksins á a8 með …b5? leiknum voru fullnýtt!
TED ræða Fiorinu fyrir 7 árum er hér að neðan og svo skákin!
Þrátt fyrir að fá 5 vinninga á sjö neðstu borðunum dugði það ekki til. Herbergi 136 átti slæman dag og ótrúlegt en satt kom enginn vinningur hjá okkar reyndustu mönnum í hús.

Niðurstaðan í Áskorendariðlinum okkar varð eftirfarandi:

Meistarariðillinn endaði svona:




Borðaverðlaun enduðu svona:

Benedikt Þórisson hefði náð verðlaunum fyrir bestan árangur á fyrsta borði ef hann hefði unnið í lokaumferðinni. Guðrún Fanney Briem stóð sig best í íslenska liðinu og hlaut 4 vinninga af 5 en það dugði ekki til borðaverðlauna að þessu sinni.

Guðrún hélt upp á 15 ára afmæli sitt í dag og var tekið stutt „surprise party“ fyrir umferð. Dagurinn var tekinn í að skoða borgina og svo teflt yfir sig um kvöldið!
Heilt yfir var mikil ánægja hjá liðum með mótið sem heppnaðist mjög vel og átti heimamaðurinn Ben Rich mikinn þunga af skipulagningunni hjá Jórvíkurmönnum.
Mónakó 2026 er næst á dagskrá!
















