Íslandsmeistarar Rimaskóla ásamt Jóhönnu Björg, varaforseta SÍ, og Helga Árnasyni liðsstjóra.

Rimaskóli varð Íslandsmeistari barnaskólasveita. Sveitin vann sigur á mótinu sem fram fór í Rimaskóla í gær eftir spennandi keppni. Rimaskóli fær keppnisrétt á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Finnlandi í haust.

Góð þátttaka var á mótinu. 36 sveitir mættu til leiks. Það þarf að fara langt aftur í tímann til að finna sama fjölda sveita.

Keppnin var æsispennandi og ýmsar sveitir skiptust á að vera í forystu. Að lokum hafnaði Rimaskóli í fyrsta sæti. Sveitin fékk 25 vinninga af 32 mögulegum.

Silfursveit Langholtsskóla ásamt Gauta Páli liðsstjóra og varaforseta SÍ.

Langholtsskóli varð annar með 22,5 vinninga.

Fráfarandi Íslandsmeistarar, Lindaskóli, urðu þriðju.

Bronssveit Lindaskóla ásamt Birki Ísaki liðsstjóra og varaforseta SÍ

Rimaskóli sýndi yfirburði, enda unnu þeir einnig keppnir b-, c- og d-sveita. Fullt hús!

B-sveit Rimaskóla ásamt liðssstjóra og varaforseta SÍ
C-sveit Rimaskóla
D-sveita Rimaskóla

Flúðaskóli vann keppni landsbyggðarsveita. Sveitina skipuðu:

  1. Fannar Kristinsson
  2. Loftur Þorsteinsson
  3. Kacper Jerzy Sójka
  4. Helgi Fannar Oddsson
Sigursveit landsbyggðarsveita Flúðaskóla ásamt varaforseta SÍ

Barnaskóli Eyrarbakka og Stokkeyri urðu í öðru sæti.

Barnaskóli Stokkeyri og Eyrarbakka verð í öðru sæti.

en Grunnskólinn á Þórshöfn, sem kom lengst að allra sveita, varð í þriðja sæti.

Grunnskólinn á Þórhöfn varð í þriðja sæti.

Lokastöðuna má finna á chess-results.

Borðaverðlaunahafar urðu:

 

1.borð Vinningafjöldi: Skóli:
Birkir Hallmundarson 8 Lindaskóli
Dagur Sverrisson 8 Vesturbæjarskóli a-sveit
Pétur Úlfar Ernisson 7 Langholtsskóli A-sveit
2.borð
Örvar Hólm Brynjarsson 8 Lindaskóli
Emilía Embla B. Berglindardóttir 7 Rimaskóli a-sveit
3.borð
Emilía Klara Tómasdóttir 7 Hvaleyrarskóli b-sveit
4.borð
Inga Jóna Haarde Vignisdóttir 7 Melaskóli a-sveit
Helgi Fannar Flúðaskóli a-sveit
Derick Matthias 7 Austurbæjarskóli a-sveit

Mótsstjórn var í höndum Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur. Skákstjórar ásamt Jóhönnu voru Daði Ómarsson, Róbert Lagerman, Auðbergur Magnússon, Hrund Hauksdóttir og Heimir Páll Ragnarsson.

Skáksambandið þakkar öllum starfsmönnum, foreldrum, liðsstjórum og keppendum kærlega fyrir gott samstarf!

- Auglýsing -