Fjölmennt Suðurlandsmót í skólaskák fór fram í Laugalandsskóla miðvikudaginn 2. apríl síðastliðinn. Alls mættu 74 keppendur til leiks, 28 í flokki 1.-4. bekkjar, 37 í flokki 5.-7. bekkjar og 9 í flokki 8.-10. bekkjar. Mótið fór fram í Laugalandsskóla í Holtum í blómlegri sveit á Suðurlandsláglendinu.
Tefldar vou sex umferðir í hverjum flokki með tímamörkunum 5+3 á klukkunni, 5 mínútur á mann og 3 sekúndna viðbótatími á leik. Keppt var um þrjú sæti á Landsmótið í skólaskák sem fer fram á Ísafirði í maí.
Nemendur mættu til leiks úr eftirfarandi skólum:
Laugalandsskóli í Holtum
18 nemendur í 1.-4. bekk
15 nemendur í 5.-7. bekk
6 nemendur í 8.-10. bekk
Flúðaskóli
8 nemendur í 1.-4. bekk
7 nemendur í 5.-7. bekk
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
1 nemandi í 1.-4. bekk
12 nemendur í 5.-7. bekk
2 nemendur í 8.-10. bekk
Hvolsskóli
1 nemandi í 1.-4. bekk
3 nemendur í 5.-7. bekk
Grunnskólinn á Hellu
1 nemandi í 8.-10. bekk
Úrslit urðu svona:
1.-4. bekkur
- sæti: Jakub Dawid Bucik, Flúðaskóla, með 5.5 vinning
- sæti: Eyvindur Ari Borgþórsson, Flúðaskóla, með 5 vinninga
- sæti: Brynjar Logi S. Arndal, Flúðaskóla, með 4.5 vinning

5.-7. bekkur
- sæti: Ívan Gauti Ívarsson, Barnaskólanum Eyrabakka og Stokkseyri, með 6 vinninga
- sæti: Ísak Guðni Birgisson, Barnaskólanum Eyrabakka og Stokkseyri, með 5.5 vinning
- sæti: Hugo Týr Nönnusön, Barnaskólanum Eyrabakka og Stokkseyri, með 5.5 vinning en neðar á oddastigum.

8.-10. bekkur
- sæti: Jón Elli Bjarkason, Grunnskólanum Hellu, með 5 vinninga
- sæti: Óskar Atli Örvarsson, Barnaskólanum Eyrabakka og Stokkseyri, með 5 vinninga en neðar á oddastigum
- sæti: Hákon Þór Kristinsson, Laugalandsskóla, með 4 vinninga

Stefán Arnalds, skákmaður og kennari í Laugalandsskóla ásamt Gauta Páli Jónssyni skákmanni og skákkennara sáu um mótshaldið með góðri aðstoð annarra á svæðinu.
Mótið á chess results
Nokkrar myndir til viðbótar

















