Svæðismót Norðurlands eystra var háð hér á Akureyri í gær, 4. apríl. Alls mættu 38 börn til leiks úr 8 skólum.
Úrslit sem hér segir:
Yngsta stig (1-4. bekkur):
röð | nafn | f. ár | skóli | vinn |
1 | Nökkvi Már Valsson | 2015 | Brekkuskóli | 6 |
2 | Kolbeinn Arnfjörð Elvarsson | 2015 | Brekkuskóli | 5 |
3 | Dominik Wielgus | 2015 | Oddeyrar | 4 |
Iraklis Hrafn Theodoropoulos | 2016 | Oddeyrar | 4 | |
Björgvin Elvar Björgvinsson | 2015 | Brekkuskóli | 4 | |
Benedikt Jósef Halldórsson | 2015 | Þórshafnar | 4 | |
7 | Axel Óli Vilhelmsson | 2015 | Lundarskóli | 3½ |
8 | Blær Thoroddsen | 2018 | Brekkuskóli | 3 |
Patricija Petkute | 2015 | Lundarskóli | 3 | |
Þorleifur Karl Kárason | 2015 | Glerárskóli | 3 | |
Ólafur Steinar Steinarsson | 2015 | Síðuskóli | 3 | |
Björn Ingvar Marinósson | 2016 | Naustaskóli | 3 | |
Sóley Birna Steinþórsdóttir | 2015 | Lundarskóli | 3 | |
14 | Elín Stefanía Sigurðardóttir | 2015 | Lundarskóli | 2 |
Þórkatla Andradóttir | 2015 | Lundarskóli | 2 | |
Óliver Örn Stefánsson | 2015 | Síðuskóli | 2 | |
Heiðdís Heiða Jónasdóttir | 2015 | Síðuskóli | 2 | |
Daníel Freyr Narfason | 2016 | Hríseyjar | 2 | |
19 | Jóhann Narfi Narfason | 2016 | Hríseyjar | 1½ |
Hér var sigur Nökkva nokkur öruggur eins og vænta mátti. Hann lenti þó í knappri vörn gegn Kolbeini, en tókst að lokum að snúa á hann og knýja fram vinning. Kolbeinn var nokkuð öruggur í öðru sæti og vann alla aðra en Nökkva. Fjórir deildu svo þriðja sætinu.
Á miðstigi voru 14 keppendur þar sigraði Harpa eftir hörkukeppni við Viacheslav bekkjarbróður sinn í Lundarskóla. Í innbyrðis skák þeirra komst Slava í heldur betra endatafl en gætti ekki að sér og þegar Harpa náði að króa riddara hans af úti í horni voru úrslitin ljós. Þessi tvö, ásamt Vali Darra voru bersýnilega í sérflokki hér, enda öll að stunda reglulegar æfingar hjá Skákfélaginu. Athygli vakti öflug innkoma pilta frá Þórshöfn, en þeir stunda vikulegar æfingar undir handleiðslu Hilmu skólastjóra. Mættu fleiri taka þá Þórshafnarbúa sér til fyrirmyndar. Lokastaðan:
röð | nafn | stig | f.ár | skóli | vinn |
1 | Karlsdottir Harpa Hrafney | 1542 | 2013 | Lundarskóli | 6 |
2 | Kramarenko Viacheslav | 1500 | 2013 | Lundarskóli | 5 |
3 | Asgrimsson Valur Darri | 1464 | 2012 | Brekkuskóli | 4 |
4 | Thoroddsen Kari | 2012 | Brekkuskóli | 4 | |
5 | Albertsson Ingvar Smari | 2014 | Þórshafnar | 3 | |
6 | Snaebjornsson Baltasar | 2013 | Lundarskóli | 3 | |
7 | Arnason Jakob Ingi | 2014 | Þórshafnar | 3 | |
8 | Axelsson Sigurbergur | 2014 | Þórshafnar | 3 | |
9 | Stefansdottir Soldogg Jokla | 2013 | Brekkuskóli | 3 | |
Valgardsdottir Ragnheidur | 2013 | Brekkuskóli | 3 | ||
11 | Oskarsson Tony Rafn | 2014 | Oddeyrarskóli | 2 | |
12 | Helgason Jon Valur | 2013 | Brekkuskóli | 2 | |
13 | Rask Anna Viola | 2013 | Hríseyjar | 1 | |
14 | Rask Johan Jorundur | 2014 | Hríseyjar | 0 |
Þá er komið að elsta flokki. Þar eru nokkrir áhugasamir piltar, en alls ekki nógu margir. Í þetta sinn mætti fimm til keppninnar. Mikið jafnræði ríkir meðal þeirra þriggja bestu, svo mjög að skákum þeirra allra lauk með jafntefli – og var þó hart barist. Þeir tefldu einfalda umferð og niðurstaðan var þessi:
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | vinn | ||||
Tobias Matharel | 1640 | 2009 | Brekkuskóli | * | ½ | ½ | 1 | 1 | 3 |
Sigþór Árni Sigurgeirsson | 1655 | 2011 | Oddeyrarskóli | ½ | * | ½ | 1 | 1 | 3 |
Baldur Thoroddsen | 1570 | 2009 | Brekkuskóli | ½ | ½ | * | 1 | 1 | 3 |
Kristian Már Bernharðsson | 2011 | Síðuskóli | 0 | 0 | 0 | * | 1 | 1 | |
Hreggviður Örn Hjaltason | 2009 | Giljaskóli | 0 | 0 | 0 | 0 | * | 0 |
Þá þurfti að tefla til úrslita og þar var dramatíkin ekki minni; Fyrst gerðu þeir Baldur og Sigþór enn eitt jafntefli eftir harða baráttu. Þá tókst Tobiasi að leggja Baldur að velli. Lokst áttust þeir við Sigþór og Tobias og fór snemma að halla á þann síðarnefnda. Hann slapp svo aldrei úr heljarklóm Sigþórs og mátti játa sig sigraðan. Þá vera ljóst að einmitt Sigþór Árni Sigurgeirsson náði að hreppa hið eftirsóknarverða sæti á landsmótinu nú í vor.
Fleiri myndir má finna á Facebook.