Reykjavíkurskákmótið 2025 hófst í dag í Hörpu með þátttökumeti enn eitt árið en 419 skákmenn eru skráðir til leiks á mótinu. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, setti mótið með ávarpi þar sem keppendur og áhorfendur hylltu minningu meistarans með lófaklappi. Í kjölfarið lék Líf Magneudóttur, fulltrúi Reykjavíkurborgar, fyrsta leikinn í skák Parham Maghsoodloo á efsta borði og taflið hófst!

Vignir að tafli. Mynd. David Llada

Vignir Vatnar Stefánsson er stigahæstur íslensku keppendanna og hann hikaði ekki við að tileinka sigur sinn í fyrstu umferð, átrúnaðargoði sínu, Friðrik Ólafssyni. Gerði Vignir það með því að beita hinu svokalla „Burstabæjarafbrigði“ í sikileyjarvörninni en Margeir Pétursson minntist einmitt á þetta afbrigði í síðasta tímaritinu Skak.

Líkt og Friðrik gerði gjarnan náði Vignir í sigurinn þegar tímahrakið stóð yfir!

Í fyrstu umferð mætast iðullega skákmenn þar sem töluvert bil er á milli elóstiga. Stigahærri skákmenn vinna gjarnan meirihluta skáka í svissneska kerfinu en all nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós, þar á meðal jafntefli Gauta Páls Jónssonar (2122) gegn stórmeistaranum Matthieu Cornette (2528), sem eru góð úrslit á pappír. 

Þeir sem þekkja Gauta vita þó að hann er væntanlega ekki alveg sáttur enda átti hann góð færi í skemmtilegri skák. Á tímabili hafði Gauti fimm peð, já fimm peð fyrir riddara svarts…þó eitt af peðunum væri á leiðinni að falla. Jafnteflið varð þó niðurstaðan.

Íslensku titilhafarnir Jóhann Hjartarson, Guðmundur Kjartansson, Hannes Hlífar Stefánsson, Jón Viktor Gunnarsson, Þröstur Þórhallsson, Bragi Þorfinnsson, Hilmir Freyr Heimisson og Björn Þorfinnsson náðu sér allir í sigur í fyrstu umferðinni.

Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir náðu sér í sérdeilis prýðileg úrslit. Adam lagði IM Alexis Tahay (2397) en Josef lagði FM Joshua Colas (2275). Frábær dagur hjá þeim bræðrum! Taflfélagsstrákarnir voru duglegir í „upsettunum“ í þessari umferð en auk Adams, Josefs og Gauta þá náði hinn ungi Pétur Úlfar Ernisson (1602) í góðan sigur gegn AFM Charles Frey (1871) með svörtu!

Fyrsta umferð sýndi að íslenskir skákmenn eru tilbúnir að mæta sterkum andstæðingum og gera sitt besta á þessu skemmtilega móti, flaggskipi íslenskrar skákhreyfingar. Við hlökkum til að fylgjast með framhaldinu en á morgun er tvöföld umferð og ýmislegt getur og mun gerast!

Sigurbjörn Björnsson teflir á lægsta borðanúmerinu af Íslendingunum á morgun en hann mætir indverska stórmeistaranum Abhijeet Gupta, fyrrverandi sigurvegara Reykjavíkurskákmótins. Flestir af íslensku titilhöfunum halda áfram að mæta stigalægri keppendum.

Morgunumferðin (2. umferð) hefst klukkan 09:00 og seinni umferðin 16:00. Áhorfendur eru velkomnir í Hörpu að bera meistarana augum!

Skákir í beinni:

Tenglar á helstu streymara:

- Auglýsing -