Reykjavíkurskákmótið er hafið! Hér að neðan má horfa á útsendingu frá fyrstu umferð.

Um 90 íslenskir skákmenn taka þátt og þar á meðal flestir sterkustu skákmenn og skákkonur landsins. Meðal innlendra keppenda eru Jóhann HjartarsonHannes Hlífar Stefánsson og Vignir Vatnar Stefánsson.

Meðal keppenda eru heimsþekkir skákmenn og skákkonur. Stigahæstur keppenda er íranski skákmaðurinn Parham Maghsoodloo sem teflir í fyrsta sinn á Íslandi. Þekktastur keppenda er úkraínska goðsögnin Vasyl Ivanchuk.  Eins og síðustu ár sitja áhrifavaldar mark sitt á mótið. Þeirra þekkust í ár er Anna Cramling sem hefur um tvær milljónir fylgjenda.  Mammaa hennar, Pia Cramling, skýrir skákirnar á netinu!

Skákir í beinni:

Tenglar á helstu streymara:

- Auglýsing -