Maghsoodloo (Mynd: Ómar Óskarsson)

Íranski stórmeistarinn Parham Maghsoodloo vann Reykjavik Open 2025 með glæsilegum árangri, hlaut 7½ vinning af 9 mögulegum og tryggði sér sigurinn í lokaumferðinni.​ Sigurinn er einstaklega glæsilegur í ljósi þess að hann tók sér hjásetu og hefði tapað á oddastigum hefði einhver náð honum.

Gamla brýnið Vasyl Ivanchuk var hæstur á oddastigum af þeim sem komu í 2-11. sæti með 7 vinninga.

Af íslenskum keppendum stóðu Vignir Vatnar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson sig best, allir með 6,5 vinninga. Þeir enduðu í efri hluta mótsins og geta kvatt mótið þokkalega sáttir.

Nánari samantekt og greining á mótinu verður birt síðar á Skak.is.​

Skákir í beinni:

Tenglar á helstu streymara:

Úrslit og Paranir á Chess-Results

- Auglýsing -