Markús Orri (Mynd: Thor Kvakkestad)

Hið árlega Páskahraðskákmót Skákfélags Akureyrar fór fram á annandag páska, 21. apríl. Alls tóku 15 keppendur þátt í mótinu, sem var 9 umferðir með 3+2 umhugsunartíma. Hinn ungi og efnilegi Markús Orri Óskarsson varð hlutskarpastur með 8,5 vinninga í 9 skákum, alvöru yfirburðir! Gamla brýnið Áskell Örn Kárason tók annað sætið með 8 vinninga.

Lokastaða mótsins:

  1. Markús Orri Óskarsson – 8½ vinningar

  2. Áskell Örn Kárason – 8 vinningar

  3. Rúnar Sigurpálsson – 7½ vinningar

  4. Sigurður Eiríksson – 6 vinningar

Markús Orri leyfði aðeins jafntefli gegn Rúnari Sigurpálssyni en vann aðrar skákir. Áskell lagði Rúnar að velli og þarmeð var röðin á toppnum ljós enda þessir þrír í sérflokki!

Mótið fór fram í húsnæði Skákfélags Akureyrar og skapaðist þar skemmtileg og góð stemning. Mót þetta er fastur liður í starfsemi félagsins og hlakkar félagið til að halda áfram með viðburði sem þessa í framtíðinni.

Nánari upplýsingar og úrslit má finna á Chess-Results

- Auglýsing -