Stigahæsti skákmaður Íslendinga Vignir Vatnar Stefánsson, náði sér í sögulegan sigur í kvöld á hinu vikulega Titled Tuesday hraðskákmóti á Chess.com þar sem bestu skákmenn heims taka iðulega þátt. Vignir náði sér í besta höfuðleður sem hægt er að ná í skákinni, hann lagði sjálfan Magnus Carlsen að velli!

Þetta var í fyrsta skipti sem Vignir og Magnús mættust í skák – og útkoman var ótrúlegur sigur fyrir íslensku vonarstjörnuna, sem hafði svart í skákinni. Vignir beitti Philidor-vörn og fékk verra tafl snemma en aldrei þannig að hann væri í taphættu. Í miðtaflinu virtist Magnus misstíga sig og Vignir vann „hreint peð“ eins og hann sagði sjálfur. Í kjölfarið náði Vignir að komast í endatafl og stýra vinningnum heim þrátt fyrir auglóslega mikið stress og geðshræringu.

🔗 Skoða skákina á Chess.com

Þrátt fyrir að um hraðskák hafi verið að ræða er þetta einn af fáum sigrum íslensks skákmanns gegn Magnúsi Carlsen, sem hefur ríkt yfir skákinni í fjölda ára. Einhverjir hafa lagt Carlsen að velli en líklegast enginn eftir að hann varð heimsmeistari.

Við þetta allt saman má bæta að Carlsen vann ALLAR aðrar skákir sínar á mótinu og fékk 10 vinninga af 11 mögulegum og vann mótið. Hann tapaði s.s. aðeins gegn Vigni. Þetta var í kjölfarið á ótrúlegum árangri Carslen á móti í Þýskalandi, Grenke Freestyle mótinu þar sem Carlsen fékk 9 vinninga af 9 mögulegum gegn frábærum andstæðingum.

Vignir hafði þetta að segja í stuttu spjalli við Skak.is:

Hef aldrei teflt við hann áður, tefldi Philidor -vörn og fæ í raun skítastöðu skv. tölvunum, misminnti aðeins í byrjun. Síðan kom þessi skrítni Hc5 leikur, ef þetta hefði ekki verið Carlsen hefði ég haldið að þetta væri ömurlegur leikur.

Síðan vann ég peð og staðan mín varð auðteflanleg og staðan hans hrundi. Ég var samt farinn að fá kvíðakast og átti á köflum erfitt með að höndla músina gegn besta skákmanni allra tíma….en þetta hafðist!

Vídeó af skákinni sem Vignir póstaði á Íslenskir Skákmenn á FB má nálgast hér:

https://www.facebook.com/share/v/19PoUyLXFB/

Vignir verður gestur hjá Kristjáni Erni „Við Skákborðið“ á Útvarpi Sögu miðvikudaginn 23. apríl klukkan 14:00 þar sem vafalítið verið rætt um þessa skák og þetta afrek!

- Auglýsing -