Ísllensku landsliðsstelpurnar Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem eru báðar í banastuði á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fer í Fredericia í Danmörku. Þær eru báðar efstar í sínum flokki með 3 vinninga af 3 mögulegum eftir tvöfalda umferð í dag.
Íslenski hópurinn er samstilltur og duglegur við undirbúning og uppskeran verið nokkuð góð það sem af er móti!
A-flokkur:
Iðunn Helgadóttir og Katrín María Jónsdóttir tefla í A-flokki. Í fyrri skák dagsins lenti Iðunn í mikilli baráttuskák við stigaháa og sterka danska stelpu. Sú danska missti af góðu taktísku skoti í miðtaflinu og á endanum hafði Iðunn betur en hún setti fína tímapressu á þá dönsku.
Katrín tapaði sinni skák í fyrri umferðinni en báðar voru þær betri í seinni skákinni. Katrín vann sína skák og Iðunn tefldi seinni skák dagsins af fítonskrafti. Iðunn mætti Juliu Ostensson sem er með tæp 2000 elóstig og komin með töluverða reynslu. Gaman hefur verið að sjá betri tímanotkun, óttalausa taflmennsku og mun betri byrjanakerfi en áður hjá íslensku stelpunum, sérstaklega hjá Iðunni og Guðrúnu!
Iðunn fórnaði óhrædd manni fyrir baráttu í „lausamölinni“ gegn Júlíu og reyndist á endanum harðari í baráttunni og náði sér í sigur!
Iðunn er efst í flokknum með fullt hús en Katrín hefur 1 vinning. Iðunn mætir Diana Vashchenko í 4. umferðinni á efsta borði og hefur hvítt.
B-flokkur:
Guðrún Fanney Briem er eini íslenski keppandinn í þessum flokki og hefur farið með himinskautum það sem af er móti.
Guðrún hefur eins og margir keppendur á mótinu verið að nýta sér síðu Vignis Vatnars, Vignirvatnar.is við sinn byrjanaundirbúning. Ekki er hægt að segja annað en það hafi gefist vel! Í fyrri skákinni tefldi Guðrún örugglega í byrjuninni og af krafti í framhaldinu ásamt því að passa tímanotkunina vel.
16.Bxa5! var sterkt taktískt skot þar sem Dc3 myndi gafla hrókana ef svartur tæki!
Guðrún sýndi hvað hún hefur unnið vel fyrir mót og breytti til í seinni skák dagsins, fór nú í 1.d4 og tefldi afbrigðið sem Vignir mælir með gegn kóngsindverja. Guðrún fékk auðveldlega betra tafl og var skákin aðeins spurning um „raðtækni“ og sigurinn aldrei í hættu!
Guðrún mun hafa svart gegn Jósefínu Hellstrand frá Svíþjóð í 4. umferðinni.
C-flokkur:
Í C-flokknum eru sex íslenskar stelpur og eru þær að standa sig vel og ná í góða reynslu! Þær Emilía Embla B. Berglindardóttir, Harpa Hrafney Karlsdóttir, Halldóra Jónsdóttir og Katrín Ósk Tómasdóttir hafa allar tvo vinninga af þremur mögulegum. Sigrún Tara Sigurðardóttir hefur einn vinning en Miroslava Skibina á enn aftir að komast á blað.
Hér er snaggaralegur sigur hjá Halldóru úr 2. umferð. Eftir sviptingar framan af skákinni náði Halldóra algjörri stjórn á stöðunni og kláraði dæmið faglega.
4. umferð hefst kl. 07:00 að íslenskum tíma á morgun, sunnudag tvær umferðir fara fram á sunnudeginum.
—
Ísland á níu fulltrúa á mótinu sem tefla í þremur aldursskiptum flokkum:
A-flokkur
Iðunn Helgadóttir
Katrín María Jónsdóttir
B-flokkur
Guðrún Fanney Briem
C-flokkur
Emilía Embla B. Berglindardóttir
Halldóra Jónsdóttir
Harpa Hrafney Karlsdóttir
Katrín Ósk Tómasdóttir
Miroslava Skibina
Sigrún Tara Sigurðardóttir
Þjálfari hópsins er Björn Ívar Karlsson.
Dagskrá mótsins á íslenskum tíma:
Fös 25. apríl – 16:00 – 1. umferð
Lau 26. apríl – 07:00 – 2. umferð
Lau 26. apríl – 13:00 – 3. umferð
Sun 27. apríl – 07:00 – 4. umferð
Sun 27. apríl – 13:00 – 5. umferð
Pörun
Heimasíða mótsins
Keppendalisti
Bein útsending

















