
Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2025 verður haldið fimmtudaginn 1. maí nk. kl. 13:00 í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.
Tímamörk verða 5 mínútur á hvorn keppanda + 3 sekúndur við hvern leik, og má reikna með að hver skák taki um 10–12 mínútur.
Mótið gefur FIDE-hraðskákstig (Blitz rating points).
Skráning keppenda fer fram hjá skákstjóra, Sæmundi Einarssyni, með tölvupósti á netfangið saemi.einars@gmail.com, eða á staðnum frá kl. 12:30 á keppnisdaginn.
Fréttir frá Taflfélagi Vestmannaeyja
Aðalfundur Taflfélagsins var haldinn þann 24. mars síðastliðinn.
Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemi félagsins hafi verið í föstum skorðum á liðnu starfsári. Skákþing Vestmannaeyja 2025 og seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024–25 var þá nýlokið, en Taflfélag Vestmannaeyja tók þátt með þrjú keppnislið.
Skákkennsla fyrir ungmenni í Grunnskóla Vestmannaeyja á vegum félagsins fer fram einu sinni í viku, bæði á haust- og vorönn, í skákheimilinu að Heiðarvegi 9.
Karl Gauti Hjaltason, sem verið hefur formaður TV síðan 2023, gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir að hann var kjörinn alþingismaður 30. nóvember síðastliðinn. Í hans stað var Hallgrímur Steinsson kjörinn formaður og gjaldkeri félagsins. Sæmundur Einarsson var kjörinn varaformaður og ritari, og aðrir í stjórn eru Sigurjón Þorkelsson, Auðunn Haraldsson og Ágúst Ómar Einarsson.
Á árinu 2026 verða 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja. Í afmælisnefnd félagsins voru kjörnir fyrrverandi og núverandi formenn TV: Arnar Sigurmundsson, Karl Gauti Hjaltason og Hallgrímur Steinsson. Þeir munu leggja fram tillögur um hvernig félagið hyggst minnast þessa merka áfanga á afmælisárinu.
















