Ísllensku landsliðsstelpurnar Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem náðu báðar sigri í sínum flokki á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fór í Fredericia í Danmörku um helgina. Þær eru báðar Norðurlandameistarar eftir harða baráttu í dag. Heilt yfir fínt mót hjá skemmtilegum og samheldnum stúlknahóp.
A-flokkur:
Iðunn Helgadóttir tapaði fyrri skák dagsins gegn hinni finnsku Vaschenko. Iðunn tefldi traust gegn Benko bragði, skilaði peðinu strax með b6-afbrigðinu og hélt góðri stjórn á stöðunni.
Líklegast hefði Iðunn átt að gefa strax til baka skiptamun sem vannst á b4 með 34.Hxd4 cxd4 35.c5 og hvítur getur bara unnið með fína stöðu. Þarna urðu þess í stað vatnaskil og sú finnska fór að tefla skínandi vel, menn hennar urðu virkir og smátt og smátt hrundi hvíta staðan.
Fyrir lokaumferðina var því ljóst að baráttan yrði mikil. Vaschenko stóð best að vígi en Iðunn gat aðenis treyst á sjálfa sig, að vinna í lokaumferðinni og vona að Julia Ostenson, mótherii Vaschenko myndi ekki tapa. Það raungerðist heldur betur!
Enn eina ferðina leituðu stelpurnar í smiðju Vignis Vatnars á Vignirvatnar.is og má segja að drottningarbragðið með svörtu hafi verið lykillinn að sigrinum hjá Iðunni. Hún vann þessa mikilvægu skák í 5. umferð og notaði sömu byrjun gegn Juliu. Caroline leyfði klassískt …Bxh2 trikk sem ótrúlega margir hafa fallið í í þessari byrjun!
Athugið að óleiðrétt DGT villa er í skákinni. Hvítur drap með drottningu á c6 og svartur lék Bb7. …forritið reynir að laga það með aukaleikjunum Dc3-c5 og Dxc5 en kemur eins út.
Katrín María gerið jafntefli í fyrri skákinni en tapaði þeirri seinni. Iðunn hafði efsta sætið á oddastigum og var ansi mjótt á mununum!
B-flokkur:
Guðrún Fanney Briem virtist lengi vel ætla að fara sömuleið og Iðunn, þ.e. tapa fyrri skák dagsins. Eftir fína byrjun missti Guðrún þráðinn og 12-14. leikur hennar voru allir slakir og hvítur stóð til vinnings með nánast mátsókn með réttum leikjum. Guðrún slapp með skrekkinn og náði að verjast og sneri svo taflinu í endatafli með ótrúlegri seiglu.
Slakasta skákin á mótinu en slapp. Guðrún kláraði svo með traustri skák, samdi jafntefli þegar hún sá enga leið í gegn en Guðrún mátti í raun tapa í lokaumferðinni en hefði samt unnið á oddastigum.
Glæsilegur árangur hjá Guðrúnu sem fer taplaus í gegnum mótið.
C-flokkur:
Í C-flokknum tóku sex íslenskar stelpur þátt Gaman að segja frá því að frændþjóðirnar Ísland og Færeyjar einokuðu gullið á þessu móti en sú færeyska Lisa Xin tók gullið á mótinu. Hlutskörust íslensku stelpnanna urðu Emilía Embla B. Berglindardóttir og Halldóra Jónsdóttir með 3,5 vinning en þær fengu báðar 1,5 af 2 í dag og mega vel við una. Harpa Hrafney Karlsdóttir endaði með 3 vinninga á meðan þær Katrín Ósk Tómasdóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir enduðu með tvo vinninga. Miroslava Skibina sá til þess að allar komust á blað og endaði með einn vinning.
Heilt yfir fínn árangur hjá íslensku keppendunum og mikil og góð reynsla fyrir flesta!
—
Ísland átti níu fulltrúa á mótinu sem teflduí þremur aldursskiptum flokkum:
A-flokkur
Iðunn Helgadóttir
Katrín María Jónsdóttir
B-flokkur
Guðrún Fanney Briem
C-flokkur
Emilía Embla B. Berglindardóttir
Halldóra Jónsdóttir
Harpa Hrafney Karlsdóttir
Katrín Ósk Tómasdóttir
Miroslava Skibina
Sigrún Tara Sigurðardóttir
Þjálfari hópsins var Björn Ívar Karlsson sem fórst erfitt verkefni vel úr höndum. Á köflum voru raðir á hótelgöngum líkt og Björn væri heimilislæknir meðan beðið var eftir undirbúning í næstu skák!
Pörun
Heimasíða mótsins
Keppendalisti
Bein útsending
















