Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2386) og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson (2375) taka þátt í Ljubljana Chess Festival 2025, sem fram fer þessa dagana í Slóveníu.
Mótið er opið alþjóðlegt mót og alls eru 165 keppendur skráðir til leiks.
Björn er númer 13 á styrkleikalista og Bragi er númer 16, sem þýðir að bræðurnir eru meðal sterkustu þátttakenda mótsins.
Fyrsta umferð fór fram í dag.
Björn hóf mótið með jafntefli í sinni viðureign. Björn hafði svart gegn ungum strák frá Panama með 2160 stig og FM-titil. Tefldur var ítalskur leikur og hvítur reyndi lítið að rugga bátnum. Björn var aldrei í taphættu en fékk fá færi á að reyna að búa eitthvað til.
Bragi hafði hvítt gegn WFM með 2146. Bragi náði yfirhöndinni með smekklegum leik
16.Rh5! færði Braga betra tafl en Bragi lék því svo niður í miðtaflinu og þurfti einhverskonar dómsdagssvíðing í endtafli til að klára skákina!
Næsta umferð fer fram snemma á morgun en þá verður teflt tvöföld umferð. Verkefnin líta svona út:

Sigurbjörn Hermannsson tekur einnig þátt á mótinu og er númer 118 í styrkleikaröð. Hann vann í fyrstu umferð gegn Emma Preda (1569) frá Ítalíu.
Við fylgjumst áfram með framgöngu þeirra félaga í Ljubljana!
















