Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur fór fram helgina 9.–11. maí og þrátt fyrir að vera fámennt var það mjög góðmennt með fjölda titilhafa. Mótið hófst með fjórum atskákum á föstudeginum og hélt síðan áfram með þremur kappskákum yfir helgina.
Lokastaðan
Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson (2344) varð hlutskarpastur með 5,5 vinninga úr 7 skákum. Hann fór taplaus í gegnum mótið og hafði betur á oddastigum gegn Bárði Erni Birkissyni (2270), sem einnig hlaut 5,5 vinninga og endaði í öðru sæti. Þriðja sætið hlaut stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2528) með 5 vinninga. Vignir leið fyrir það að þurfa að gefa fjórðu atskákina á föstudeginum þar sem hann var í raun „tvíbókaður“.
Helstu úrslit í lokaumferðinni
-
Dagur Ragnarsson vann Jóhann Ragnarsson og tryggði sér sigurinn í mótinu.
-
Bárður Örn Birkisson sigraði Benedikt Thorisson og jafnaði Dag að vinningum, en tapaði á oddastigum.
-
Vignir Vatnar Stefánsson lagði FM Símon Þórhallsson og tryggði sér þriðja sætið.
Athyglisverður árangrar
Pétur Úlfar Ernisson (1713) stóð sig frábærlega og hlaut 4 vinninga, sem skilaði honum fínni elóstigabætingu. Margir ungir skákmenn fengu fína reynslu á þessu móti gegn sterkum skákmönnum.















