Guðmundur Kjartansson að tafli (Mynd: Ómar Óskarsson)

Íslenski stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2437) sigraði örugglega á sterku Fischer Random móti sem fram fór í München, laugardaginn 18. maí. Guðmundur hlaut 5 vinninga í 5 skákum og tryggði sér þar með fyrsta sætið með glæsibrag.

Tefldi Guðmundur við bæði reynda og sterka andstæðinga. Meðal þeirra sem Guðmundur lagði að velli voru tveir titilhafar: stórmeistarinn Egor Krivoborodov (2535) í fjórðu umferð og alþjóðlegi meistarinn Klaudia Kulon (2396) í fimmtu og síðustu umferðinni.

Hér eru andstæðingar Guðmundar eftir umferðum:

  • 1. umferð: Lorenz Gauchel (1912)

  • 2. umferð: FM Ulrich Zenker (2089)

  • 3. umferð: Tugrul Turel (2147)

  • 4. umferð: GM Egor Krivoborodov (2535)

  • 5. umferð: IM Klaudia Kulon (2396)

Guðmundur sýndi þarna mikinn styrk í Fischer-slembiskákinni (einnig þekkt sem Chess960 og Freestyle Chess), þar sem byrjunarstaða taflmanna er dregin af handahófi og þarf heilabúið því að fara á yfirsnúning frá fyrsta leik. Sást það hvað best í einni skákinni þar sem Guðmundur taldi sig hafa sloppið með skrekkinn strax í 2. leik!

Eftir 1.Rg3 hjá andstæðingnum lék Guðmundur 1…b6 og setti á peðið á g2. Honum rann hinsvegar kalt vatn milli skinns og hörunds þegar hann áttaði sig á því að 2.Rf5 eða 2.Rh5 væru stórhættulegir þar sem hvítur hótar máti á g7! Áhyggjur Guðmundar voru þó óþarfar þar sem báðum leikjum má svara með 2…f6 og svartur stendur aðeins betur skv. tölvuforritum. Andstæðingur Guðmundar lék öðrum leik og Guðmundur vann skákina.

Þessi sigur bætist við fínan mótaferil Guðmundar sem hefur margoft staðið sig vel á erlendri grundu og er margfaldur Íslandsmeistari í klassískri skák.

- Auglýsing -