Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í síðustu viku mættu tveir okkar allra bestu skákkennurum, Gauti Páll og Torfi Leósson í Skipholtið.
Í kynningu um þáttinn segir:
Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson eru gestir þáttarins að þessu sinni. Báðir eru þeir fyrrum formenn Taflfélags Reykjavíkur og núverandi þjálfarar félagsins. Í þættinum fara þeir yfir hvernig skákumhverfið hefur breyst á undanförnum áratugum og hvernig ný tækni og aukin samkeppni hefur haft áhrif á þjálfun og styrkleika skákmanna. Með tilkomu rafrænna kennslutækja og skákforrita hefur orðið bylting í skákþjálfun. Þeir segja að íslenskir skákmenn verði að fylgjast vel með ætli þeir sér að vera samkeppnishæfir á alþjóðavettvangi.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
















