Dagana 17. og 18. maí stóð Skákfélag Akureyrar fyrir „stelpuhelgi“ í Skákheimilinu í samstarfi við kvennaskáknefnd SÍ og mætti Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, varaforseti SÍ og kennari við Skákskóla Íslands, til Akureyrar til að taka þátt.
Á laugardeginum var haldin vegleg æfing sem 12 stúlkur á aldrinum 9–12 ára tóku þátt í. Þær létu afar vel af æfingunni, og ekki skemmdi fyrir að enda daginn á ljúffengri pizzuveislu.
Daginn eftir var svo haldið Stúlknameistaramót Akureyrar, með átta þátttakendum. Þar stóð hin reynda Harpa Hrafney Karlsdóttir uppi sem sigurvegari, en hún vann allar sínar skákir – sjö talsins – og er þar með fyrsta stúlkan um langt árabil sem hampar þessum titli.
Næst henni kom Sóldögg Jökla Stefánsdóttir með sex vinninga, og í þriðja sæti varð Ragnheiður Valgarðsdóttir með fimm. Allar þessar stúlkur eru fæddar árið 2013 og sýna mikinn áhuga og elju í skákinni.
Vonandi tekst okkur að halda merki kvennaskákar hátt á lofti hér fyrir norðan, og var heimsókn Jóhönnu mikil hvatning í þá átt.
















