Starfsári Taflfélags Garðabæjar lauk um helgina með kríla- barna og unglingameistaramóti félagsins.
Í krílaflokki kepptu krakkar í 1. bekk og yngri og voru tefldar fjórar umferðir. Mikil spenna var í mótinu og þurfti úrslitaskák til þess að knýja fram úrslit þar sem Styrmir Laufdal Kolbeinsson bar sigur úr býtum. Sebastian Smith var í öðru sæti og Friðrik Jochum Lárusson þriðji.

Barna og unglingaflokkur voru tefldir í sama móti en efstu þrír í hvorum flokki verðlaunaðir sérstaklega. Í barnaflokki sigraði Jakob Þór Emilsson með 5,5 vinninga í 7 skákum og er hann því barnameistari TG 2025. Annar með 5 vinninga var Þorvaldur Orri Haraldsson og í þriðja sæti með 4 vinninga var Benedikt Dagur Freysson, en þeir tefldu allir saman í Íslandsmeistarasveit Hofsstaðaskóla.

Í unglingaflokki var Daníel Fjölnir Jónsson Hjartar nokkuð öruggur sigurvegari með 6,5 vinninga í 7 skákum. Í öðru sæti með 4,5 vinninga var Róbert Magni Enoksson og í 3. sæti með 4 vinningar var Birkir Leó Björnsson.















