Halmstadmótinu lauk á laugardaginn. Tefldar voru átta umferðir frá fimmtudegi til laugardags (fjórar atskákir og fjórar kappskákir). Níu iðkendur Skákdeildar Breiðabliks tóku þátt undir styrkri leiðsögn Daða Ómarssonar:
Open
Gunnar Erik Guðmundsson
Markús Orri Jóhannsson
Sigurður Páll Guðnýjarson
Örvar Hólm Brynjarsson
U1750
Aðalsteinn Egill Ásgeirsson
Halldóra Jónsdóttir
Hallur Steinar Jónsson
Hrannar Már Másson
Þórarinn Víkingur Einarsson
Í báðum flokkum var skipt í 10-12 keppenda hópa eftir skákstigum og fengu efstu keppendurnir verðlaun.
Gunnar Erik fékk fimm vinninga og vann sinn stigaflokk.
Örvar Hólm fékk fjóran og hálfan vinning og vann sinn stigaflokk einnig.
Markús Orri og Sigurður Páll fengu fjóra vinninga.
Í U1750 flokknum sló Halldóra í gegn. Hún fékk þrjá og hálfan vinning í síðustu fjórum skákunum og endaði með 5 vinninga. Hún vann sinn stigaflokk og var einnig efsta konan í hópnum.
Aðalsteinn Egill og Hrannar Már fengu fjóra vinninga, Þórarinn Víkingur fékk þrjá og hálfan vinning og Hallur Steinar fékk þrjá.
- Auglýsing -
















