Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands frá árinu 2009, hefur tilkynnt að hann hyggist láta af embætti á aðalfundi sambandsins sem fram fer 14. júní næstkomandi á Blönduósi. Gunnar greindi frá ákvörðun sinni á fundi stjórnar SÍ þann 27. maí og segir nú frá í opinni færslu á samfélagsmiðlinum Facebook.

Gunnar hefur verið þaulsetnasti forseti í 100 ára sögu Skáksambands Íslands og var hann sjálfkjörinn í embætti fram til síðustu kosninga árið 2023. Þá þegar ákvað hann að núverandi tímabil yrði hans síðasta.

„Sextán ár eru prýðilegur tími,“ skrifar Gunnar og horfir stoltur um öxl yfir farsælan feril.

Á forsetatíð hans hefur íslenskt skáklíf tekið stórt stökk fram á við. Helstu hápunktar undir forystu Gunnars eru meðal annars:

  • Haldið var heimsmeistaramót í Fischer-slembiskák, Evrópumót einstaklinga og landsliða.

  • Fjöldi heimsþekktra stórmeistara hefur sótt Ísland heim, þar á meðal Garry Kasparov, Magnus Carlsen, Hikaru Nakamura, Hou Yifan, Gukesh, Praggnanandhaa, Abdusattorov, Ian Nepomniachtchi og Fabiano Caruana.

  • Reykjavíkurskákmótið hefur vaxið úr því að vera 100 manna mót annað hvert ár í 400 manna stórmót haldið árlega, nú talið eitt af virtustu opnu skákmótum heims.

Gunnar bendir einnig á að skákiðkun á Íslandi hafi aldrei verið meiri, miðað við höfðatölu, og að þátttaka og skráning til skákstiga hafi aukist ár frá ári. Auk þess nefnir hann ánægju sína með vaxandi skáklíf á landsbyggðinni og miklar framfarir í kvennaskák, þar sem varaforseti hans, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, hafi leikið lykilhlutverk.

„Ég vona að ég hafi lagt mitt lóð á vogarskálarnar,“ segir Gunnar og bætir við að það hafi verið forréttindi að starfa við skák öll þessi ár. Hann segist þó ekki vera hættur í skákheiminum – fyrsta verkefni hans sem fyrrverandi forseta verður að stýra 100 ára afmælishátíð Skáksambandsins, sem haldin verður á Blönduósi dagana 14.–22. júní.

Skáksamband Íslands þakkar Gunnari Björnssyni fyrir ómetanlegt framlag hans til íslensks skáklífs.

- Auglýsing -