Flokkamótinu í Kronborg í Danmörku lauk í dag en alls tóku níu íslenskir skákmenn þátt í sjö flokkum og enduðu íslenskir skákmenn í efsta sæti í þremur flokkum.g þátt í skemmtilegu flokkaskiptu móti. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlega meistarinn Dagur Ragnarsson gerðu báðir jafntefli í lokaumferðinni.

GM-flokkur

Vignir mætti stórmeistaranum reynda Sune Berg Hansen í lokaumferðinni en hann var í efsta sæti og taplaus. Skákin var skemmtileg, Vignir lagði allt í sölurnar og tefldi til vinnings og hafði á köflum fín færi en varnir Danans héldu að lokum.

Á sama tíma gerði Dagur frekar tilþrifalítið jafntefli gegn Harry Grieve þar sem Dagur var aldrei í hættu en átti heldur engin færi.

Vignir og Dagur enduðu báðir með 5 vinninga rétt fyrir ofan miðju, traust mót en ekkert frábært. Dagur hækkar lítillega á stigum en Vignir blæði aðeins stigum.

Masters 3: (2123-2156)

Adam Omarsson vann í lokaumferðinni og endaði með 4,5 vinning og skipti efsta sætinu í sínum flokki. Lenka Ptacnikova endaði á jafntefli og fékk 2,5 vinning.

Masters 4: (2107-2123)

Björn Hólm Birkisson vann í lokaumferðinni og endaði með 4 vinninga í skiptu efsta sæti í ótrúlega jöfnum flokki. Segja má að elostigakerfið hafi unnið sigur í þessum flokki!

Masters 7 (2008-2030)

Josef Omarsson tapaði í lokaumferðinni og endaði með 3,5 vinning.

Basic 3 (1796-1819)

Unnar Ingvarsson tapaði í lokaumferðinni og endaði með 3,5 vinning í skiptu 3ja sæti.

Basic 4 (1750-1796)

Erlingur Jensson gerði jafntefli í lokaumferðinni og endaði með 4 vinninga í skiptu 3ja sæti.

Basic 5 (1713-1750)

Lárus H. Bjarnason hélt áfram sigurgöngu sinni og vann í lokaumferðinni og endaði með 6,5 vinning úr 7 skákum. Hans helsti andstæðingur gerði jafntefli í lokaumferðinni þannig að Lárus varð einn efstu í sínum flokki.

- Auglýsing -