Fimmta mótið í Friðrikssyrpunni, bikarsyrpu TR lauk um helgina. Jafnframt lauk syrpunni í vetur og heildarmeistari var krýndur. Pétur Úlfar Ernisson vann þessu fimmtu syrpu með fullu húsi og með því tryggði hann sér líka sigur í heildarkeppninni.

BikarSyrpaVwinners

Pétur var í miklu stuði eins og áður sagði með 7 vinninga af 7 en næstur honum á stigum og jöfn komu Dagur Kári Steinsson og Emilía Embla B. Berglindardóttir með 5 vinninga af 7 en Dagur hafði betur á innbyrðisviðureign.

KVK_flokkur

Emilía tók stúlknaverðlaunin en baráttan á milli hennar Katrínu Ósk og Emilíu, systrana úr Haukum, var skemmtileg og spennandi. Mikið af lærdómsríkum skákum og keppendur fara reynslunni ríkari heim eftir helgina.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -