Það var fullt út að dyrum á opnum kynningardegi Skákskóla Íslands, sem fram fór í gær.
Fjöldi gesta gaf sér tíma til þess að kynna sér starfsemi Skákskólans, nýtt kennsluefni, notkun tækninnar og tölvubúnaðar við skákkennslu og ýmislegt fleira. Áhugasöm ungmenni leystu skákþrautir og tefldu við gesti og gangandi. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tók við áskorunum og tefldi hraðskákir við áhugasama.

Að kvöldi dags tefldi stigahæsti skákmaður Íslands, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, fjöltefli við tólf efnileg ungmenni.

Meðal andstæðinga Vignis voru bræðurnir Karma og Nirvaan Halldórssynir sem tefldu í gegnum netið frá Ísafirði.

Vignir vann ellefu skákir en gerði eitt jafntefli. Það var nýkrýndur krílameistari TG, hinn fimm ára gamli Styrmir Laufdal Kolbeinsson sem stýrði peðsendatafli lipurlega í jafnteflishöfn gegn stórmeistaranum.

Nánar má lesa um starfsemi Skákskóla Íslands á heimasíðu skólans.

















