Nokkur umræða hefur verið undanfarið um þróun íslenskra skákstiga. Ég ákvað að gera tilraun til að setja þróunina upp myndrænt til þess að umræðan ætti sér sterkari stoð í gögnum.
Aðferð
- Ég skoðaði virka skákmenn, sem hefur sína kosti og galla. Það er t.d. nóg að tefla bara eina skák til að teljast virkur.
- Tímabilið er frá 2005-2025
- Gröfin sýna hæstu stig, lægstu stig og meðalstig á annað hvort topp 10 eða topp 20 listanum. Efsti hluti línunnar eru hæstu stig, neðsti hluti er lægstu stig og græni punkturinn meðaltalið.
Topplistinn
Myndirnar hér fyrir neðan sýna þróunina undanfarin 20 ár ef allir aldursflokkar eru teknir með. Ég ætla ekki að draga neinar ályktanir af þessum myndum því þarna teljast oft með skákmenn sem tefla jafnvel bara í deildarkeppninni og rétt haldast virkir. Staðan er þó þokkaleg í dag miðað við söguna.
Topp 10 meðaltal í dag: 2450
Topp 10 sögulegt meðaltal: 2477
Topp 20 meðaltal í dag: 2407
Topp 20 sögulegt meðaltal: 2419
Afreksflokkur
Ef við gefum okkur að flestir okkar landsliðsmenn komi úr 21-49 ára flokknum þá gefur sá flokkur líklega besta mynd af afreksflokknum í dag. Þar eru topp 10 skákmennirnir 39 stigum undir sögulegu meðaltali, en tvisvar á þessum 20 árum höfum við verið með lægra meðaltal. Topp 20 skákmennirnir eru 33 stigum undir sögulegu meðaltali.
Topp 10 meðaltal í dag: 2408
Topp 10 sögulegt meðaltal: 2447
Topp 20 meðaltal í dag: 2345
Topp 20 sögulegt meðaltal: 2377

Efnilegir skákmenn
Ef við lítum á U20 flokkinn þá sést að hann sveiflast mikið þegar okkar sterkustu skákmenn vaxa upp úr flokknum. Við erum í dag 53 stigum yfir sögulegu meðaltali á topp 10 og það þrátt fyrir að hafa ekki Vigni eða Hjörvar sem voru mjög stigaháir á þessum aldri. Við virðumst því eiga mun fleiri sterka unga skákmenn en oft áður.

Topp 10 meðaltal í dag: 2107
Topp 10 sögulegt meðaltal: 2054
Topp 20 meðaltal í dag: 1999
Topp 20 sögulegt meðaltal: 1913
Niðurstaða
Það má lesa margt út úr þessum gögnum eftir því hvort glasið er hálf fullt eða hálf tómt hjá manni. Við erum aðeins búin að lækka í afreksflokknum, en staðan er mjög sterk í U20 flokknum. Ef ég hefði notað janúargögnin frekar en júlígögnin hefði staðan litið mun betur út því nokkrir af okkar sterkustu skákmönnum hafa misst stig í upphafi árs. Það ber að varast að draga of sterkar ályktanir af þannig tímabundnum dýfum.
Svo má auðvitað leggja áherslu á að menn eru alls ekki sammála um hvort stig í dag séu samanburðarhæf við stig fyrir 10 eða 20 árum, bæði vegna breyttra reiknireglna og annarra þátta í skákheiminum.


















