Aleksandr Domalchuk-Jonasson teflir nú á kappskákmóti í Taiwan sem hófst í dag! Aleksandr er á ferðalagi um Asíu og mun tefla á nokkrum mótum hér og þar um álfuna. Vignir Vatnar er væntanlegur til Asíu einnig og þeir munu hittast síðar í mánuðinum.
Mótið sem Aleksandr tekur þátt í nefnist 2025 Asian Dragons International Chess Tournament. 27 keppendur taka þátt í opnum flokki þar sem tefldar eru 9 umferðir, tvær á dag nema lokaumferðin. Okkar maður er stigahæstur en aðeins einn keppandi utan hans hefur yfir 2000 elóstig. Hér er því ákveðin stigagildra á ferð og þarf Aleksandr að vonast til að mæta ekki of mörgum „underrated“ heimamönnum sem hafa bara teflt í helli 😉
Aleksandr hefur lokið fyrsta keppnisdegi og fékk þar 2 vinninga af 2 mögulegum. Önnur skákin var á livecloud sem hægt er að sjá í tenglinum hér að neðan.

















