Tvær tvennur íslenskra skákmanna tefla nú annars vegar á Spáni og hinsvegar í Frakklandi. Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir áttu upp og niður dag í 8. umferð á opnu móti í Frakklandi. Akureyringarnir CM Halldór Brynjar og Stefán Steingrímur Bergsson áttu ólíku gengi að fagna í 6. umferð á Spáni. Halldór tapaði sinni skák gegn öðrum CM en Stefán gerði jafntefli í sinni skák.

Bárður tapaði gegn skákmanni með 2143 stig með hvítu og hefur 3,5 vinning af 8. Björn Hólm vann sína skák gegn Rodriguez Rodriguez (2009) og hefur 4 vinninga.

Franska mótinu lýkur í dag:

Halldór tapaði eins og áður sagði gegn öðrum CM A.Bendayan (2250) en Stefán Steingrímur gerði jafntefli með hvítu gegn Sheinkman (1930) heimamanni. Þeir hafa báðir 2,5 vinning að loknum 6 umferðum.

Þrem umferðum er ólokið á Spáni, tefld er ein skák á dag og lýkur mótinu á sunnudag, 15 efstu borð eru í beinni, okkar menn ekki líklegir þar en ættu þó að vera hlið við hlið að nýju í 7. umferðinni!

- Auglýsing -