Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson héldu áfram tafmlennsku „Stóra eplinu“ þegar þriðji keppnisdagur á lokuðum IM-flokki, „Marshall Summer Six Day“ fór fram. Tefldar voru 4. og 5. umferð. Fyrir umferðina voru þeir báðir taplausir, Hilmir með 2,5 vinning en Dagur með 2 vinninga.
Hilmir gerði nokkuð stutt jafntefli í 4. umferð. þar mætti Hilmir alvöru ref, Karen Movsziszian…reyndur og sterkur skákmaður sem skásetur biskups sinn nánast ALLTAF! Hilmir ákvað að velja aðra orustu en þessa og samdi.
Í seinni skákinni ætlaði Hilmir sér greinilega meira gegn Julian Colville ungum 15 ára FM með 2248. Hilmir virtist þó eitthvað misfarast í byrjuninni og fékk verra tafl gegn hinu nokkuð meinlaus 3.Bd3 afbrigði á móti franskri vörn. Hvítur fékk biskupaparið og þægilegra tafl og vann svo peð. Hilmir barðist en það dugði ekki til og varð að lúta í dúk.
Hilmir því með 3 af 5 í þessum flokki.

Flokkur Dags:

Dagur gerði aftur tvö jafntefli. Búið er að slá aðra skákina inn sem var í rólegri kantinum.
Dagur hefur 3 vinninga af 5 og er taplaus.

Dagur og Hilmir tefla eina skák í dag!
- Mótið á lichess (velja IM-C fyrir Hilmi og IM-E fyrir Dag)
- Heimasíða mótsins
















