Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir luku í gær leik á opnu móti í Frakklandi þar sem segja má að hafi fjarað eilítið undan vinningasöfnuninni þegar leið á mótið. Á sama tíma voru þeir félagar CM Halldór Brynjar og Stefán Steingrímur Bergsson spangólandi á Spáni í 7. umferð þar sem þeir unnu báðir!

Fyrir lokaumferðina hafði Björn 4 vinninga en Bárður 3,5 vinning. Björn tapaði í lokaumferðinni gegn sterkum heimamanni Leonardo Vincenti (2265) en Bárður gerði jafntefli með svörtu við 2040 stiga skákmann. Enduðu þeir báðir með 4 vinninga.

Björn endaði í 95. sæti.

Björn hafi 3 vinning eftir 5 umferðir með aðeins eitt tap gegn stigahæsta keppandanum. Í loin kom aðeins einn vinningur í hús í fjórum skákum en öll töpin gegn stigahærri skákmönnum. Árangur Björns samsvaraði 2186 skákstigum og hækkar hann því lítillega fyrir frammistöðuna.

Bárður var háll sem áll

Bárður endaði í 100. sæti. Eins og hjá Birni gekk honum illa seinni part móts og fékk aðeins einn vinning í síðustu fimm skákum sínum.

Árangurinn hjá Bárði samsvaraði 2120 skákstigum og lækkar hann á stigum eftir þetta mót.

Sólskinsbræðurnir á Spáni (Halldór líklegast aðeins meira í sólinni!) náðu báðir í sigur í 7. umferðinni.

Halldór Brynjar mætti enn einum starfsbróður sínum úr CM-stéttinni Ivan Rodriguez með 2181 elóstig. Halldór er rútíneraður með svörtu og hér hefur Ivan vafalítið fengið að finna fyrir Grunfeldinum eða Najdorfnum. Ekki öfundasvert hlutverk hjá Ivan að „velja sitt eitur“!

Stefán Steingrímur fylgdi Halldóri eftir Santiago Juan Mas (1939) að velli en nokkuð ljóst má vera að Reykjavíkurmeistarinn fyrrverandi hefur gleymt meiru í skákskilningi en Juan Mas á eftir að læra og sýndi Stefán það! Skak.is hefur borist skák Stefáns!

Tveimur umferðum er ólokið á Spáni og hafa þeir báðir 3,5 vinning af 7 mögulegum, tefld er ein skák á dag og lýkur mótinu á sunnudag, 15 efstu borð eru í beinni.

Í áttundu umferð sem er að hefjast hefur Stefán svart gegn CM Aaron Claros (2250) en Halldór hefur hvítt gegn Adrian Milan (2179) sem er FIDE meistari.

- Auglýsing -