Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson tefldu einfalda umferð í gær Marshall skákklúbbnum Í Nýju Jórvík á „Marshall Summer Six Day„. Dagur vann sína skák en Hilmir gerði jafntefli.

Hilmir hafði hvítt gegn IM Bilych og upp kom drottningarbragð. Hilmir tók engar áhættur og þrálék snemma tafls.

Hilmir því með 3 af 6 í þessum flokki.

Flokkur Dags:

Dagur vann skemmtilega stöðulegan sigur á sínum andstæðingi. Lev Shangin lenti í að berjast við stöðuyfirburði Dags meirihluta skákarinnar en endaði á að lúta í dúk…skemmtilegt „dúllerí“ hjá Degi með kónginn á miðborðinu í endataflinu.

Dagur hefur nú 4 vinninga af 6.

Dagur og Hilmir nú aftur tvær skákir í dag!

- Auglýsing -