Aleksandr Domalchuk-Jonasson heldur áfram að „hreinsa“ á kappskákmóti í Taiwan sem hófst í gær! Aleksandr er á ferðalagi um Asíu og mun tefla á nokkrum mótum hér og þar um álfuna. Vignir Vatnar er væntanlegur til Asíu einnig og þeir munu hittast síðar í mánuðinum.

Mótið sem Aleksandr tekur þátt í nefnist 2025 Asian Dragons International Chess Tournament. 27 keppendur taka þátt í opnum flokki þar sem tefldar eru 9 umferðir, tvær á dag nema lokaumferðin. Okkar maður er stigahæstur en aðeins einn keppandi utan hans hefur yfir 2000 elóstig. FM Watanatbe hefur aðeins 2 af 4 þannig að Aleksandr hefur ekki enn mætt honum.

Aleksandr hefur lokið tveimur keppnisdögumm og hefur 4 af 4. Skákir þriðju og fjórðu umferðar má sjá í livecloud-tenglinum að neðan. Sasha hefur náð að vinna nokkuð þægilega tæknilega sigra án þess að þurfta að leggja mikið á stöðurnar.

- Auglýsing -