Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson tefldu tvöfalda umferð í gær í Marshall skákklúbbnum Í Nýju Jórvík á „Marshall Summer Six Day„. Dagur gerði tvö jafntefli en Hilmir tapaði og gerði svo jafntefli.

Hilmir hafði svart og lenti snemma í hremmingum í skákinni. Reyndar hófust hremmingarnar fyrir skák en neðanjarðalestakerfi borgarinnar fór illa með þá félaga og var ferð þeirra aflýst þegar 3 stopp voru eftir á skákstað. Kostaði þetta það að þeir mættu hálftíma of seint í skákina.

Eftir skiptamunsfórn hvíts á c5 hafði hvítur yfirburðastöðu og Nathaniel Moor keyrði sóknina í gegn nokkuð sannfærandi.

Seinni skákin endaði með jafntefli gegn efnilegum 12 ára strák. Hilmir hafði svart og fékk ekki nóg til að tefla til vinnings úr Kalashnikov en Hilmir hafði biskupaparið fyrir peð.

Hilmir því með 4 af 8 í þessum flokki.

Flokkur Dags:

Dagur gerði tvö jafntefli í sínum flokki og hefur 5 vinninga af 8 mögulegum.

Dagur og Hilmir eru nú að tefla lokaumferðina.

- Auglýsing -