Aleksandr Domalchuk-Jonasson heldur áfram að kenna heimamönnum í Taiwan að tefla. Aleksandr er að tefla á 2025 Asian Dragons International Chess Tournament. 27 keppendur taka þátt í opnum flokki þar sem tefldar eru 9 umferðir, tvær á dag nema lokaumferðin. Okkar maður er stigahæstur en aðeins einn keppandi utan hans hefur yfir 2000 elóstig. FM Watanatbe hefur ekki enn komist á efsta borð að glíma við Aleksandr!

Aleksandr hefur lokið fjórum keppnisdögumm og hefur 8 af 8. Skákir sjöundu og áttundu umferðar má sjá í livecloud-tenglinum að neðan. Einhvern veginn þróuðust báðar skákirnar í 7. og 8. þannig að Sasha endaði með tvo menn fyrir hrók. Einstaklega smekkleg drottningarfórn í 8. umferð!

- Auglýsing -