Framhaldsaðalfundur Skáksambands Íslands fór fram föstudaginn 11. júlí, í sal Skákskóla Íslands. Vegna margra samverkandi þátta voru reikningar sambandsins ekki tilbúnir í tíma fyrir aðalfundinn á Blönduósi 14. júní sl. svo boða þurfti til framhaldsaðalfundar.
Góð afkoma einkenndi starfsár Skáksambandsins árið 2024. Rúmar 2 milljónir í hagnað. Meðal annars var hagnaður af Reykjavíkurskákmótinu sem orðið er að sjálfbæru móti eftir að hafa verið rekið með tapi í gegnum árin.
Ársreikningur áritaður af endurskoðanda og skoðunarmönnum var lagður fram og samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta fundarmanna. Gott og jákvætt andrúmsloft einkenndi fundinn og voru reikningar sambandsins samþykktir með 21 atkvæðum gegnum tveimur.
- Auglýsing -













