Lokaumferðin á tólfta árlega Washington International skákmóti fór fram í gær en fyrir hana var Héðinn Steingrímsson jafn þremur öðrum skákmönnum í efsta sæti. Bensíntankurinn var orðinn tómur í lokaumferðinni og Héðinn varð að lúta í dúk.
Andstæður Héðins var indverskri stórmeistarinn Rahul (2455). Héðinn hafði hvítt en sá indverskri tefldi af krafti og kom Héðni í nauðvörn fljótlega með skemmtilegri skiptamunsfórn. Pressan á hvítu stöðuna var gríðarleg og þrátt fyrir góða baráttu varð eitthvað undan að láta að lokum og Rahul fann snyrtilega leið til að klára dæmið.
Héðinn endaði því í skiptu fjórða sæti og má vel við una. Skákin í lokaumferðinni var eina skákin sem fóru undir 90% í accuracy á chess.com reiknum.
- Auglýsing -















