Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson kláruðu um helgina taflmennsku á Opna Spilimbergo-mótinu á Ítalíu. Gengið var upp og niður þar, Bárður tapaði um 16 stigum en sótti í sig veðrið þegar á leið mótið og var taplaus í sex síðustu skákunum og endaði með 5 vinninga. Björn náði að hækka um 5 stig á mótinu með 4,5 vinning. Nú hafa þeir hafið taflmennsku á næsta móti, líka á Ítalíu og hafa báðir byrjað vel.
Í 1. umferð nýtti Bárður sér kærkomin taktísk mistök indversks andstæðings síns.
Björn fékk líka snemma þægilegt tafl og vann svo peð og eftirleikurinn varð auðveldur.
Í 2. umferð sem fór fram fyrr í dag virtist Bárður ætla að leggja stórmeistara að velli. Bárður fékk yfirburðatafl með hvítu, tefldi af krafti og kóngur Armenans var fastur á miðborðinu. Á ögurstundu missti Bárður þráðinn taktískt og missti skákina niður í jafntefli.
Björn gerði á sama tíma mjög öruggt og þægilegt jafntefli við alþjóðlegan meistara. Líklegast hefði Björn átt að ýta d-peði sínu áfram í miðtaflinu en tók enga sénsa og var alltaf með jafnteflið í vasanum.
Þriðja umferð stendur nú yfir þar sem þeir eru báðir að tefla við titilhafa.














