Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2374) kláraði með glæsibrag mótið í Túnis, Sahel Chess Festival Open A en lokaumferðin fór fram í morgun. Aleksandr vann þrjár síðustu skákir sínar og endaði í öðru sæti.
Aleksandr hafði svart í 8. umferð gegn stórmeistaranum Amir Zaibi (2339). Sasha náði á einhvern ótrúlegan hátt að kreysta fram vinning í endatafli með því að fanga hvíta riddarann á jaðri borðsins með örfá menn á borðinu.
Endatöflin virðst svo sannarlega vera styrkleiki hjá Aleksandr en hann lagði annan stórmeistara, Nebojsa Nikcevic í lokaumferðinni. Aleksandr hafði hvítt og kreysti vinninginn í endatafli sem virtist jafnt framan af.
Lokaniðurstaðan glæsilegir 7 vinningar af 9 og stigagróði upp á tæp 11 elóstig. Það var aðeins norski stórmeistarinn Johan-Sebastien Cristiansen (2655) sem gerði betur en hann fékk 8,5 vinning og bætti við sín elóstig. Þriðja sætið var heilum einum og hálfum vinningi á eftir Aleksandr!

















