Kristján Örn Elíasson, alþjóður skákdómari, útvarpsmaður, sigurvegari c-flokks Haustmóts TR og virkasti skákmaður landsins, hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í dag mættu tveir ungir og efnilegir, Haukur Víðis og Pétur Úlfar í Skipholtið ásamt einum þjálfara þeirra Torfa Leóssyni.

Kristján Örn, Torfi, Haukur og Pétur.

Í kynningu um þáttinn segir:

Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag eru þeir Haukur Víðis Leósson, 11 ára, og Pétur Úlfar Ernisson, 9 ára, tveir efnilegir og áhugasamir ungir drengir úr Taflfélagi Reykjavíkur. Þeir hafa tekið skákina föstum tökum undanfarin 3 ár og hafa m.a. báðir orðið Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki.

Kristján heimsækir þá á æfingu og ræðir við þá um það hvernig þeir fengu áhuga á skák og hvaða vinnu þeir leggja í til að bæta sig, eftirminnilegar skákir, skákmót, þjálfara, vini við skákborðið og nýafstaðið Haustmót TR þar sem þeir Haukur og Pétur háðu mikla orrustu við Kristján Örn um sigur í C-flokki á mótinu. Með þeim í þættinum er Torfi Leósson skákkennari, einn þeirra sem komið hafa að þjálfun ungu drengjanna.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -