Ísfirðingurinn ungi og stórefnilegi, Karma Halldórsson (1660), er eini fulltrúi Íslands á HM barna sem fram fer í Almaty í Kasakstan þessa dagana. Karma teflir í u-12 flokki. Mótið er gríðarlega sterkt. Margir sterkir keppendur frá Asíu og Austur-Evrópu. Minna um keppendur frá Vestur-Evrópu sem stefna frekar á EM ungmenna í Budva í Svartfjallalandi síðar í haust.
Í gær vann hann fyrstu skák þegar Chaz Reifer-Belle (1459) frá Barbados var lagður af velli. Frídagur er í dag. Karma teflir við Kasaka á morgun.

- Auglýsing -


















