Hið hefðbundna Hraðskákmót TR var haldið síðastliðið miðvikudagskvöld. Mótið er iðulega haldið í kjölfarið á Haustmóti TR og verðlaunaafhending fyrir Haustmótið haldin eftir mótið.
Skemmst er frá því að segja að stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson var í banastuði og lagði alla andstæðinga sína að velli og fékk 9 vinninga af 9. Næstur Vigni kom landsliðsmaðurinn Dagur Ragnarsson sem hlaut 6,5 og í þriðja sæti lenti Bárður Örn Birkisson, hafði betur gegn Oliver Aron á oddastigum.
- Auglýsing -
















