Hinu árlega og sívinsæla Evrópumóti Taflfélaga lauk í gær þegar lokaumferðin fór fram á Ródos á Grikklandi. Sviptingarnar í lokaumferðunum voru töluverðar en á endanum var það Taflfélag Reykjavíkur sem varð efst íslensku liðanna á „horreiminni“! Íslandvinurinn Ivan Sokolov náði sér í enn eina rósina í hnappagatið en hann var liðsstjóri Superbet frá Rúmeníu sem urðu hlutskarpastir eftir erfiða lokaumferð. Metþátttaka var á mótinu í ár og að margra mati eitt skemmtilegasta mót ársins!

Hér að neðan verður farið yfir gang mála í lokaumferðinni hjá hverju liði auk þess sem frammistaðan verður gerð upp!

Taflfélag Reykjavíkur

Adam reyndist lykilmaður í að tryggja efsta sæti TR með íslensku liðanna eftir ævintýralega endataflsbjörnun í lokaumferðinni!

Sveit Taflfélags Reykjavíkur endaði efst íslensku sveitanna. Til þess að ná þeim árangri þurfti liðið að treysta á eigin getu auk þess að Blikar og Fjölnir næðu ekki góðum úrslitum í lokaumferðinni.

Aldursforseti liðsins, Þröstur Þórhallsson gaf tóninn. Þröstur náði að véla mannsvinning af andstæðingi sínum og eins og oft áður hafði spörfulginn svo ansi næmt auga fyrir að enda alla mótspyrnu á smekklegan hátt! Síðasti leikur Þrastar, Ra7-b5 bauð einmitt upp á það!

Svartur gat svosem gefið en lék …Hxc4 og gafst loks upp þegar biskupinn kom til d5 með glotti frá fleiri en einum!

Þótt ótrúlegt megi virðast skildi þessi skák á milli í viðureigninni! Næsta skák til að klárast var hjá formanninum og einum af ristjóra Skak.is, Ingvari. Skákin gekk nokkuð vel gegn gríðarlega ungum og efnilegum þýskum skákmanni (eins og þeir voru reyndar allir). Þegar jafntefli var samið taldi undirritaður að Gummi myndi vinna, Gauti hefði átt að vinna en staðan líklega jafntefli, Sasha búinn að bjarga jafntefli og Adam myndi tapa. Það var því ekki áhættunnar virði að tefla „ókunna“ stöðu áfram á svart þó hún væri með besta móti.

Spá formanns reyndist að mörgu leiti rétt…“vinningalega“ og þar með réttmæt en „útréttir“ vinningar skiptu um eigendur í spánni! Andstæðingur Gumma náði að verjast með kjafti og klóm og redda jafntefli. Adam hinsvegar sat í ógeðslegri vörn í 30-40 leiki eftir að hafa misst niður líklegast strategísk unna stöðu snemma tafls. Adam gaf sig hinsvegar ekki, reddaði jafnteflinu á ótrúlegan hátt og lokaniðurstaðan 3,5-2,5 og TR því efst íslensku liðanna!

Niðurstaðan 35. sæti (hófu leik í 38. sæti í styrkleika) með 8 stig, 3 unnar viðureignir, 2 jaftntefli og 2 töp. Líklegast situr mest í sveitinni að hafa ekki klárað sérdeilis góða viðureign gegn Litháum þar sem TR átti þrjár skákir þar sem vinningssénsarnir voru þeirra megin í stöðunni 1,5-1,5 en teningarnir lentu ekki réttu megin.

Heilt yfir var árangur liðsins nokkuð góður. Flestir voru að tefla nokkurn veginn á sínum styrkleika og stigasveiflur ekki miklar. Örlítið tap á neðstu borðunum en þar áttu TR eitthvað inni miðað við efni og áhöld. Adam hefði t.a.m. auðveldlega getað unnið síðustu tvær skákirnar og Gauti fékk sín færi í lokaumferðinni. Þröstur var traustur að vanda og aflakóngur liðsins, Gummi hélt efsta borðinu vel og Ingvar fínn á fjórða borði með „írakabakarí“ frammistöðu, ákveðin symmetría í úrslitunum fram og til baka! Aleksandr byrjaði frábærlega en lenti í slæmum tveggja tapskáka kafla undir lokin en var samt í stigagróða…ef hægt er að kalla núll komma þrjú stig gróða!

Fjölnir

Dagur og Björn stóðu vaktina á efstu borðum Fjölnis og leystu það verkefni sérdeilis prýðilega!

Fjölnismenn voru jafnir TR-ingum að stigum fyrir lokaumferðina og þurftu að treysta á tap hjá Blikum til að eiga möguleika á að verða efsta íslenska liðið. Verkefni lokaumferðinnar var litháísk sveit með hinn margreynda Rozentalis á efsta borði. Jón Trausti fékk skák upp á CM-titil.

Rozentalis var fyrstur að klára. Litháíski reynsluboltinn beið með hrókun gegn Reti-byrjun Dags og gerði árás á svörtu reitina, setti biskup á c5 og skellti kantpeði sínu, h-peðinu á h5 og svo h4. Dagur brást illa við, tapaði skiptamun og fljótt skákinni.

Jón Trausti jafnaði metin og náði sér í CM-titil í leiðinni með því að ná 50% árangri og Jón auðvitað lengi verið yfir 2000-elóstigum. Sigurbjörn tapaði sinni skák eftir erfiða vörn þar sem virtist þó stutt í björgina en Oliver jafnaði aftur metin með mjög flottum tæknilegum sigri með svörtu þar sem hann bauð upp á námskeið í biskupi að valda hálfhring riddarans.

Tvær skákir voru eftir hér. Skemmtilegri skák afmælisbarnsins Björns Þorfinnssonar endaði með jafntefli. Björn virtist hafa betri færi framan af skákinni en þegar leið á minnkuðu tökin og í endataflinu gat allt gerst og hvítur mögulega með færi líka. Á endanum sættust menn á skiptan hlut, líklegast sanngjörn úrslit.

Björn Hólm hélt jafntefli í sinni skák eftir smá vörn en þó ekkert of krefjandi, niðurstaðan því 3-3 í viðureigninni. Fjölnismenn enduðu því með 7 stig eins og Breiðablik en enduðu aftar á oddastigum og í 52. sæti en hófu leik í 46. sæti í styrkleikaröð.

Birnirnir tveir Þorfinnsson og Birksson stóðu upp úr og voru aflakóngar með 4,5 vinning hjá Fjölnismönnum…voru reyndar báðir lánsmenn en hafa nokkuð sterkt fjölskyldutengsl í sveitina að mörgu leiti! Dagur virtist að mörgu leiti verða eilítið bensínlaus í lokin eftir ágætis byrjun en fyrir utan Birnina var það einungis Jón Trausti sem hækkaði á stigum….OG náði sér í CM-titilinn! Þorfinsson-Björninn byrjaði einstaklega vel með 4 af 5 og Birkisson-Björninn var skrambi nálægt FIDE-meistaratitilinum en sigur í lokaumferðinni hefði dugað til þess!

Skákdeild Breiðabliks

Vignir taplaus en vildi vafalítið gera örlítið betur!

Blikarnir voru efstir fyrir lokaumferðina en í svona stuttu móti getur verið mikilvæt að „toppa“ ekki of snemma. Auðvitað geta menn bara teflt við andstæðinginn fyrir framan sig en það er mikil slembilukka í svona stuttu móti. Blikarnir fengu því erfiðustu sveitina í lokaumferðinni og þó voru stigayfirburðir Svisslendingana mest á neðstu borðunum.

Vignir hafði svart í lokaumferðinni og EKKI í fyrsta skipti á mótinu lenti hann í því að andstðingur hans nánast elti þráteflið frá byrjun. Hvítur bauð snemma upp á þrátefli sem Vignir hafnaði, tefldi taflið en þegar hvítur var peði yfir (samt ekki með neitt) tók Vignir þrátefli og jafntefli niðurstaðan.

Alltaf gott að hafa COLLAB við höndina fyrir og í miðri skák!

Hilmir Freyr var búinn að eiga allt að því stórbrotið mót, mættur aftur, og jafnvel í baráttu um borðaverðlaun. Í lokaumferðinni, „dýnamíkaði“ hann hins vegar yfir sig og stundum er einfaldlega ekki aftur snúið ef allir spilapeningarnir fara í miðjuna! Lena Georescu er reynd landsliðskona en Hilmir með hvítu á að leggja hana að velli á flestum dögum ef nálgunin er rétt.

Utan Vignis var það aðeins Benedikt sem náði jafntefli en lítið gekk upp í þessari viðureign hjá Blix. Andstæðingur Benna tefldi af krafti og hefði átt að uppskera en á endanum var erfiðið til einskis þar sem Benni hélt haus og náði jafnteflinu með góðri baráttu!

Lokaniðurstaðan hjá Blikum voru 7 stig og 49. sæti (hófu leik í 43. sæti í stigaröð).

Vignir var traustur og taplaus á efsta borði og Hilmir var algjörlega frábær, synd að klára ekki lokaumferðina eftir magnaða vegferð framan af móti! Segja má að 3-6. borð hafi að mestu ekki náð sér á strik en Benedikt Briem fær eitthvað í kladdann fyrir 4 vinninga af 7 og aðeins eina tapskák.

Sf. Akureyrar

Akureyringar klárir í bátana fyrir lokaumferðina!

Akureyringar urðu að sætta sig við tap í lokaumferðinni. Jóhann kláraði góðan seinni part móts með enn eingum sigrinum en það var einungis hinn ólseigi Áskell Örn Kárason sem bætti í púkkið með einu mesta seiglujafntefli seinni ára!

Við fyrstu sýn virtist Áskell í koltöpuðu peðsendatafli peði undir en Áskell fann leið til að búa til frípeð sem eiginlega sló úr virkni tvöfalds-frípeðs andstæðingsins. Hoerstmann fór út í drottningarendatafl og náði að véla lokapeð Áskels af borðinu og hafði þá D+c-peð gegn D en Áskell lét ekki bensínið klárast og hélt út í vörninni!

Akureyri endaði í 71. sæti en hófu leik í 58. sæti, þeir fengu 6 stig, 3 sigrar og 4 töp.

Jóhann dró að mörgu leiti vagninn en eftir tap gegn Gelfand í fyrstu umferðinni steig hann vart feilspor og fékk 4,5 vinning úr næstu 5 skákum. Áksell og Bogi komust vel undan sínu en Bogi náði í CM-titilinn með því að ná sér í 3,5 vinning af 7, 50% en hann hefur náð 2000-stigum áður nokkuð auðveldlega. Gæti Bogi hér bæst í góðan hóp akureyskra Kandídata-meistara!

Dímon

Dímon náðu sér í jafntefli í lokaumferðini gegn Cardiff #2. Magnús og Guðmundur unnu á efstu tveimur og Ólafur Örn náði sér í gríðarlegan seiglusigur í jafnteflislegu endatafli með H+h-peð gegn B+2 peð. Líklegast jafntefli með bestu taflmennsku en seigla Ólafs skilaði sér!

Efstu tvö borðin stóðu sína vakt að mestu leiti en stjarna liðsins var Ólafur Örn með 4,5 vinning af 7 mögulegum, sérdeilis prýðilegur árangur. Ólafur þarf nú 2000+ elóstig til að landa CM-titlinum!

Superbet höfðu sigur að lokum eftir að þeir lönduðu fullu húsi, sigri í lokaumferðinni. Það stóð þó tæpara en margur hefði haldið á köflum! Ólympíugull og EM Taflfélaga hjá Ivan Sokolov sem þjáflara og Gukesh nær í Ólympíugull og EM Taflfélaga titil auk þess að taka gullið á efsta borði!

Ísland í kvennaflokki

Wasa frá Svíþjóð var verkefnið í lokaumferðinni en gekk ekki vel. WIM-sveitin frá Svíþjóð leyfði aðeins jafntefli á efsta borði en aðrar skákir töpuðust.

Monaco voru hlutskarpastar í kvennaflokki og sigurinn öruggur. 4 stig komu í hjá íslensku stelpunum, eitthvað undir væntingum og 18. sætið niðurstaðan en hófu leik í 15. sæti.

Allar voru undir pari og töpuðu stigum en stigalega geta Jóhanna og Hallgerður þokkalega vel við unað. Liss var aflakóngur með 2,5 vinning og tvær vinningsskákir.

Mótið fór fram í opnum flokki (102 sveitir) og kvennaflokki (20 sveitir) og stóð yfir í sjö umferðir frá 19. til 25. október.

Alls voru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum voru það:

  • Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
  • Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
  • Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
  • Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
  • Dímon (nr. 99)

Í kvennaflokki var kvennalið sem tefldi undir nafni Íslands

  • Ísland (15)

Alls teldu 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir voru fjölmennari en Ísland sem er magnað en það voru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.

 

- Auglýsing -