Aðalfundur Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) sem haldinn var á netinu sunnudaginn 14. desember varð vettvangur mikilla átaka og kaótískra atkvæðagreiðslna, sérstaklega varðandi stöðu rússneskra og hvítrússneskra skákmanna. Fundurinn endaði með því að báðar tillögur um stöðu Rússa og Hvítrússa hlutu meirihluta, sem olli ruglingi og ásökunum um brot á reglum sambandsins.
Helsta deilumálið snerist um tvær andstæðar tillögur:
- Tillaga frá Skáksambandi Rússlands um fulla endurupptöku allra rússneskra og hvítrússneskra liða og einstaklinga, með fánum og þjóðsöngvum.
- Tillaga frá stjórn FIDE (Council) um að leyfa ungum iðkendum fulla þátttöku með þjóðtáknum í samræmi við tilmæli Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), en fullorðinna lið aðeins undir hlutlausu fána (með frekari samráði við IOC um tákn).
Báðar tillögurnar hlutu meirihluta: Rússneska tillagan (full endurupptaka með táknum) fékk 61 atkvæði með, 51 á móti; tillaga stjórnar FIDE fékk 69 með, 40 á móti.
Opinber niðurstaða FIDE, sem birt var á heimasíðu sambandsins, er að stjórnartillagan gildi þar sem hún fékk fleiri atkvæði: Lið frá Rússlandi og Hvítrússlandi eru tekin aftur inn í opinber mótaröð FIDE, ungir iðkendur fá full réttindi með þjóðtáknum strax, en fyrir fullorðna lið gildir hlutlaus fáni þar til frekari samráði við IOC lýkur.
Atkvæðagreiðslan var umdeild og kaótísk. Fyrst var greitt atkvæði um hvort atkvæðagreiðslan yrði opin eða leynileg – samþykkt var leynileg atkvæðagreiðsla. Gagnrýnendur segja að það brjóti í bága við reglur FIDE, sem kveða á um opnar atkvæðagreiðslur í slíkum málum. Margir gagnrýna að fundarstjórinn, Arkady Dvorkovich, forseti FIDE, hafi verið rússneskur.
Ísland gegn endurupptöku
Skáksambands Íslands, ásamt öðrum Norðurlöndum, greiddi atkvæði gegn báðum tillögum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Norðurlanda frá 13. desember, sem hvatti til að viðhalda refsiaðgerðum í samræmi við IOC og vegna áframhaldandi stríðs í Úkraínu.
Viðbrögð Rússa: Sigur og gleði – telja sig geta teflt undir eigin fána
Rússneskir aðilar fagna niðurstöðunni sem miklum sigri og túlka hana sem fulla endurupptöku undir rússneska fánanum og þjóðsöngnum. Rússneska skáksambandið fagnar sigri og margir rússneskir miðlar og stjórnmálamenn fagna því að allar takmarkanir séu afnumdar.
Dmitry Peskov, talsmaður Kremlar, sagði: „Við fögnum ákvörðun aðalfundar FIDE um að leyfa íþróttamönnum okkar og skákliðum að keppa á alþjóðavettvangi undir fána og með þjóðsöng“
Vonbrigði á Norðurlöndunum og í Evrópu
Það er ljóst að þessi niðurstaða er mikil vonbrigði fyrir Skáksamband Íslands og Norðurlanda og að mati þeirra í engu samræmi við vilja IOC, þótt sambandið hafi gefið hverju íþróttasambandi frjálsar hendur.
Líklegt er að þessi niðurstaða muni hafa eftirmál. Mögulega fara málin fyrir íþróttadómstólinn (CAS). Rússar gætu krafist þess að fyrri atkvæðagreiðslan standi og þeir fái að tefla undir eigin fána.
Andstæðingar niðurstöðunnar, að uppistöðu Evrópulönd, gætu krafist þess að vissar ákvarðanir aðalfundarins verði dæmdar ólöglegar.
Hvort frekari viðbrögð frá samböndum innan Evrópu koma í ljós á næstu dögum eða vikum. Eins og staðan er núna munu Rússar tefla á Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan undir hlutlausu fána. Geta teflt undir eigin fána í ungmennaliðakeppnum.
Sjáum til hvað gerist í millitíðinni!














