Skákþing Kópavogs fer fram í stúku Kópavogsvallar 2.- 4. janúar nk. Tefldar verða 7 umferðir (3 atskákir og 4 kappskákir) eftir svissneska kerfinu. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra stiga.
Skráning fer fram hér
Dagskrá
Föstudagur 2. janúar klukkan 18:30
1-3. umferð. Atskákir með tímamörkum 15+10
Laugardagur 3. janúar klukkan 09:30
4. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 og 15min viðbót eftir 40 leiki.
Laugardagur 3. janúar klukkan 17:30
5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 og 15min viðbót eftir 40 leiki.
Sunnudagur 4. janúar klukkan 09:30
6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 og 15min viðbót eftir 40 leiki.
Sunnudagur 4. janúar klukkan 17:30
7 umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 og 15min viðbót eftir 40 leiki.
Ein hjáseta leyfð í 1-5 umferð (aðrar hjásetur eru án hálfs vinnings). Tilkynna verður hjásetu áður en umferðin á undan hefst (til þess að fá hálfan vinning). Ef keppandi mætir 30 mínútum eða meira eftir upphaf kappskáka þá tapast skákin.
Þátttökugjöld:
Alþjóðlegir- og stórmeistarar: frítt
Iðkendur í Skákdeild Breiðabliks: frítt.
Fyrir aðra félagsmenn:
Fullorðnir: 2.000 kr
Unglingar: 16 ára og yngri 1.000 kr
Engin verðlaun eru í þessu móti.
Keppt er um titlana Skákmeistari Kópavogs 2025 og Unglingameistari Kópavogs 2025 (16ára og yngri). Og hlýtur sá keppandi sem verður efstur (farið eftir oddastigum ef jafnt) þeirra sem eiga lögheimili í Kópavogi eða eru félagsmenn í Skákdeild Breiðabliks titlana.
Núverandi Skákmeistarar Kópavogs er Björn Hólm Birkisson. Efstur Kópavogsbúa undir 16 ára á síðasta ári var Mikael Bjarki Heiðarsson.
Skráningarform
Skráðir þátttakendur

















