Skákþing Reykjavíkur 2026 hófst í gærkvöldi í Friðrikssalnum í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Rúmlega 50 keppendur eru skráðir til leiks og stigahæstur keppenda er alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson. Stigahærri skákmenn unnu nánast allar skákir fyrstu umferðar en þó voru nokkuð óvænt úrslit.

Dagur hafði svart og mætti Sigurlaugu og lék Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskólans fyrsta leiknum fyrir Sigurlaugu, kóngspeð fram um tvo reiti. „Best by test“ sagði Bobby. Dagur fékk góðan hvítreitabiskup sem gerði hvítum lífið leitt á löngu skáklínunni en varnirnar fóru að bresta þegar g4 reitur hvíts veiktist og riddari svarts tók sér bólfestu á honum.
Óvænt úrslit urðu á örðu borði þar sem kandídatameistarinn Benedikt Briem varð að gera sér jafntefli að góðu gegn kandídatanum í kandídatameistara, Ólafi Erni Ólafssyni. Benedikt fékk ekki úr nægjanlega miklu að moða eftir byrjunina og vörnin einföld hjá Ólafi sem gaf engin færi á sér.
Mjög óvænt úrslit urðu á 8. borði. Haukastrákurinn ungi Milosz Úlfur gerði þá jafntefli við landsliðskonuna margreyndu Lenku Ptacnikovu og tefldi Milosz glimrandi vel. Lenka með hvítu mátti hafa sig alla við að halda jafnteflinu eftir sterka stöðulega taflmennsku Milosz sem skipti réttilega upp á hvítreitabiskupum og plantaði svo riddara á d3 reitinn. Vel gert hjá stráknum.
Önnur úrslit voru eftir bókinni eins og sjá má á chess-results (tengill hér að neðan).
Önnur umferð verður tefld á sunnudaginn og verða ýmsar skemmtilegar viðureignir. Nýkrýndur Skákskólameistari, Sigurbjörn mætir þá Magnúsi Pálma og Milosz reynir sig gegn öðrum titilhafa, Guðmundi Halldórssyni.
Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.
Dagskrá:
- umferð miðvikudag 7. jan 18:30
- umferð sunnudag 11. jan 13:00
- umferð miðvikudag 14. jan 18:30
- umferð sunnudag 18. jan 13:00
- umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
- umferð sunnudag 25. jan 13:00
- umferð miðvikudag 28. jan 18:30
- umferð sunnudag 1. feb 13:00
- umferð miðvikudag 4. feb 18:30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Tímamörk:
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn:
Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 110.000
- 2. sæti kr. 55.000
- 3. sæti kr. 35.000
Aukaverðlaun
Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:
Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.
Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.
Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.
Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.
Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.
Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.
Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.
Oddastig (tiebreaks):
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger
Þátttökugjöld:
kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.
Frítt fyrir Stórmeistara
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.


Mótið á chess-results













