Stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova tryggði sér enn einu sinni Íslandsmeistaratitil kvenna í skák nú í kvöld þegar lokaumferðin fór fram í Siglingaklúbbnum Þyt í Hafnarfirði. Lenka lagði Guðrúnu Fanney Briem að velli í lokaumferðinni og þurfti því ekki að treysta á önnur úrslit. Lenka endaði með 4,5 vinning, vinningi á undan Jóhönnu Björgu sem endaði í öðru sæti.

Skák Lenku gegn Guðrúnu einkenndist af mikilli tímanotkun snemma tafls og greinilegt að hvorug var vel hnútum kunn í smá óræðri útgáfu af enska leiknum. Lenka fékk snemma mun betra tafl og Guðrún tók ekki nægjanlega góðar strategískar ákvarðanir snemma tafls og lenti í mjög erfiðri vörn og átti auk þess aðeins 3 mínútur á klukkunni eftir 12 leiki.

Reynslan brást Lenku ekki í þessum aðstæðum og hún kláraði skákina og nældi sér þar með í titilinn.

Jóhanna Björg varð að vinna sína skák og treysta á að Guðrún Fanney næði úrslitum gegn Lenku. Tinna var hinsvegar með yfirhöndina lengst af gegn Jóhönnu en annan daginn í röð slapp Jóhanna fyrir horn í töpuðu tafli. Tinna ákvað að taka þráskák með kolunnið tafl, yfirsást greinilega að eftir 40…Kh7 er 41.Hd3 unnið á hvítt.

Loks vann Iðunn sigur gegn Emilíu Emblu en þurfti að hafa mikið fyrir því, fékk verra tafl strax úr byrjuninni og Emilía missti af nokkrum góðum möguleikum til að vinna lið. Engu að síður getur Emilía vel við unað, beit vel frá sér og með smá heppni fengið mun fleiri vinninga. Þetta mót fer klárlega í reynslubankann.

Lokastaðan:

Lenka með 4,5 og er vinningi á undan Jóhönnu og svo Iðunn og Guðrún Fanney hnífjafnar í 3-4 sætinu.

Ljósmyndir frá mótinu!

_D0A3521

Verðlaun í landsliðsflokki

  1.    150.000 kr.
  2.      90.000 kr.
  3.      60.000 kr.

Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.

 

 

- Auglýsing -