Fimmta og síðasta umferð landsliðsflokks Íslandsmóts kvenna hefst í dag kl. 16. Það er svo fyrir síðustu umferð að þrjár geta hampað titlinum Íslandsmeistari kvenna.

Verðlaunaafhending mótsins hefst um kl. 20. Gæti tafist ef skákir dragast á langinn. Komi til aukakeppni fer hún fram síðar. Janframt fer fram verðlaunaafhending áskorendaflokks.

Í lokaumferðinni mætast:

  • WGM Lenka (3½) – WCM Guðrún Fanney (2½)
  • Tinna Kristín (½) – WCM Jóhanna Björg (3)
  • Emilía Embla (1) – WCM Iðunn (1½)

Skoðum möguleikanna sem eru í boði

Vinni Lenka verður hún Íslandsmeistari kvenna

Geri Lenka jafntefli gæti það engu að síður dugað ef Jóhanna Björg vinnur ekki. Ef Jóhanna vinnur þurfa þær að há aukakeppni.

Tapi Lenka gæti það dugað í 2-3 kvenna aukakeppni ef Jóhanna vinnur ekki. Ef Jóhanna vinnur hins vegar í því tilfelli verður hún Íslandsmeistari.

Eftirfarandi möguleikar eru því í boði fyrir lokaumferðina

  • Lenka verði Íslandsmeistari
  • Jóhanna verði Íslandsmeistari
  • Aukakeppni Lenku og Jóhönnu
  • Aukakeppni Lenku, Guðrúnar og Jóhönnu

Bent er á beinar útsendingar og auðvitað er hægt að kíkja við á skákstað.

Mótið fer fram í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts, Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Mótið fer fram 6.-10. febrúar 2026 og teflt verður við frábærar aðstæður. Teflt er í landsliðsflokki og áskorendaflokki.

Almennt um mótið

LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA

Umferðartafla landsliðsflokks

  1. Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
  2. Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
  3. Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
  4. Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
  5. Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun í landsliðsflokki

  1.    150.000 kr.
  2.      90.000 kr.
  3.      60.000 kr.

Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

 

- Auglýsing -