Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, útvarpsmaður, fyrrverandi varaforseti Skákfélags Grandrokks, formaður Skákfélags Íslands og virkasti skákmaður landsins hefur lengi stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Gaman að þessu.
Í síðustu viku mætti skólastjórinn, FIDE-meistarinn, FIDE-þjálfarinn, helsti landsliðsþjálfari ungmenna Íslands og Eyjamaðurinn, fyrsta borðs maður Skákfélags Akureyrar svona yfirleitt, Björn Ívar Karlsson í Skipholtið.
Í kynningu um þáttinn segir:
Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn töluðu um Skákskóla Íslands, Pressukeppnina sem er ný leið skólans til æfinga fyrir ungmenni, fjárfestingu skólans í nýjum stórum 98 tommu skjá og öðrum búnað til fjarkennslu, vinsælan skákróbot sem teflir við nemendur, fartölvur og heyrnartól sem og fjölgun iðkenda skólans, bæði í stað- og fjarkennslu. Tölvulistinn hefur verið aðalstyrktaraðili Skákskóla Íslands að baki þessum fjárfestingum eins og svo oft áður. Tíu nemendur skólans fara á morgun til Fredericia í Danmörku til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga dagana 13.-15. febrúar. Einnig ræddu þeir Tata Steel skákmótið, Speed Chess Championship netskákmótið á Chess.com, mikinn áhuga á Reykjavíkurskákmótinu, nýju heimildarmyndina „Queen of Chess“ á Netflix sem fjallar um Judit Polgar sterkustu skákkonu allra tíma og margt fleira.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.















