Símon Þórhallsson bætti enn einni fjöðrinni í sinn hatt með sigri á hraðskákmóti Akureyrar í gær, 15. febrúar. Ellefu keppendur mættu til leiks og gerði Símon sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir, tíu að tölu. Hann vann m.a. úrslitaskákina við Jón Kristin Þorgeirsson, sem varð í öðru sæti með níu vinninga. Þriðji varð svo fráfarandi meistari, Rúnar Sigurpálsson, með sjö og hálfan. Þetta var því sannarlega dagur FIDEö-meistaranna!
Mótstaflan hér á chess-results.
- Auglýsing -















