Átta manna úrslit Síminn Invitational í netskák hefjast í kvöld kl. 19. Í fyrri viðureign kvöldsins mætast alþjóðlegi meistarinn og landsliðsmaðurinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson og FIDE-meistarinn Jón Kristinn Þorgeirsson. Í þeirri síðari tefla saman alþjóðlegi bangsinn Björn Þorfinnsson og Akureyrarmeistarinn og silfurhafinn frá því í vor – FM Símon Þórhallsson.

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Skákskýringar í kvöld verða í umsjón Ingvars Þórs og Hilmis Freys.

Viðureignirnar eru á Lengjunni.

Stefán Walker, Harpa Ingólfsdóttir Gígja, Vigdís Kristín og Tinna Kristín eru efst í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -