Átta manna úrslit Síminn Invitational í netskák lauk sunnudagskvöldið 1. mars en þá fóru FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson og áhrifavaldurinn Vignir Vatnar Stefánsson áfram í úrslitin eftir góða sigra. Þeir mætast í undanúrslitum eftir tvær vikur.
Fyrri viðureign kvöldsins var viðureign FIDE-meistarana Ingvars Þórs og Bárðar Arnar. Ingvar hóf leik með hvítu og brá fyrir sig enska leiknum í fyrstu skákinni. Bárður kom Ingvar á óvart með Rubinstein-afbrigðinu og Ingvar brást við með óvenjulegum leik, h4-h5 kom snemma tafls. Lýsendur töldu Ingvar hér vel undirbúinn en Skak.is hefur sterkar heimildir fyrir því að eina hugmynd hvíts var að láta svartan eyða tíma. Ingvar ætlaði að reyna að tefla upp á tímahrak Bárðar sem hann á það til að lenda í.
Í miðtaflinu fórnaði Ingvar manni. 16.Rxc5!? er athyglisverð mannsfórn, hvítur áttaði sig á því að með réttri taflmennsku væri taflið flókið en hvítur með bætur, hugmyndin var hinsvegar fyrst og fremst að ná yfirhönd á klukkunni. Bárður brást illa við fórninni, fórnaði manninum til baka en tapaði of mörgum peðum og eftirleikurinn auðveldur fyrir hvítt.
Bárður virtist ætla að jafna metin með hvítu í skák númer tvö eftir stór mistök Ingvars í byrjuninni þar sem hann var einfaldlega sleginn skákblindu. Bárður fékk yfirburðatafl og svarta staðan virtist vera að hruni komin. Ingvar var í raun bara að leika leikjum sem koma í veg fyrir mát í næstu 5-7 leikjum en Bárður gerir mistök í úrvinnslunni, gleymir riddara ofaní og Ingvar slapp með skrekkin og komst í 2-0.
Dæmið snerist að vissu leiti við í þriðju skákinni. Ingvar hafði yfirhöndina lengst af skákar en náði ekki að klára dæmið og finna náðarhöggið. Ingvar gat tekið örugga þráskák og komist í góða stöðu en þess í stað féll hann á tíma sem var enn jafntefli með bestu taflmennsku.
Fjórða skákin, ljósleiðaraskákin, var nú lykilskák. Ingvar gerði aftur mistök í byrjuninni, víxlaði leikjum en vann sig úr því og fékk gott miðtafl og virtist frakka-reynslan ætla að draga þennan sigur að landi. Bárður fann gott mótspil, taktískt skot sem Ingvar missti af en Bárður missti af dauðafærinu.
28.f3?? gaf svörtum öll völd á borðinu. Þess í stað hefði 28.hxg6+ fxg6 29.He1 orðið ansi neyðarleg fyrir svörtu drottninguna sem stendur uppi reitalaus!
Staðan orðin 3-1 og hér var greinilegt að Ingvar var kominn með mikinn meðbyr en Bárður fann að hann var kominn með bakið upp við vegginn fræga. Ingvar hafði hvítt og tefldi af öryggi í síðustu skákinni og tryggði sér 4-1 sigur og farmiðann í undanúrslit.
Seinna einvígi kvöldsins var viðureign Vignis Vatnars og Dags Ragnars. Dagur er einn af fáum sem hafa náð að standa í hárinu á Vigni í hraðskákinni hérlendis. Margir áttu von á að Dagur ætti fína möguleika á að valda Vigni usla.
Fyrsta skák þeirra félaga er eiginlega bara hægt að lýsa með enskuslettu, sloppy! Menn skiptust á afleikjum og að hrista hausinn yfir eigin getuleysi. Dagur gat fengið vænlegt tafl snemma með …e5 framrás en missti af því. Vignir hinsvegar var greinileg ekki búinn að kveikja á taktíska áttavitanum.
Vignir á náttúrulega alltaf að sjá 18.Rd6! hér sem vinnur drottningu eins og lýsendur bentu á. Vignir fékk í raun tvo séns því eftir 18.h3? kom 18…h5?? og aftur er hægt að hoppa inn með riddarann en Vignir var bara spakur með 19.a4?
Vignir fékk aðeins betra endatafl en á þeim kafla virtist hvorugur ánægður með einn einasta leik sem þeir léku.
Vignir „mouseslippaði“ hér með 45. g4 í stað 45.gxh4 og hristi hausinn. Dagur svaraði með 45…Rxb3?? sem tapar en Vignir var enn að hrista hausinn þegar Dagur byrjaði að hrista hausinn, vafalítið fattað að síðasti leikur hans tapar bara. Vignir náði ekki að jafna sig á músaróhappinu og haushristingnum og lék 46.Bb5?? í stað 46.Bxb3 Kxb3 47.f4 og hvítur er með unnið.
Dagur fékk þess í stað unnið tafl en í tímahraki missti hann af því að taka e-peð Vignis og svo a-peð og peð hans eru illviðráðanleg eins og Tinna benti réttilega á í útsendingunni.
Vignir nú með vinninginn og náði að klára. Sviptingasöm skák og einvígið hefði klárlega getað þróast öðruvísi ef Dagur hefði tekið sína sénsa.
Vignir nýtti meðbyrinn og náði vel áttum í skák númer tvö og vann með svörtu þar sem hann beitti biskupapari sínu einstaklega vasklega! Þéttari taflmennska en í fyrstu skákinni!
Þriðja skákin var klárlega besta skák Dags. Hann minnkaði muninn í 2-1 með góðri taflmennsku. Dagur virtist betur undirbúinn í byrjuninni og náði að nýta sér það til að komast í endatafl með mun betri peðastöðu þar sem hann tefldi af öryggi og náði sér í góðan sigur.
Vignir vann sig betur úr miðtaflinu í fjórðu skákinni og vann skiptamun. Upp kom unnið endatafl, hrókur og þrjú peð gegn riddara og þrem á sama væng. Degi tókst á einhvern ótrúlegan hátt að verjast og Vignir á sama tíma fann ekki leiðina í gegn. Staðan enn fræðilega unnin en í lokin kom sama staðan þrisvar en Vignir, í tímahraki, hafði þá enn ekki fundið vinninginn. Kraftaverkajafntefli og Dagur hélt í vonina, 2,5-1,5 fyrir Vigni.
Dagur eygði von í fimmtu skákinni. Þeir endurtóku byrjunina úr þriðju skákinni sem Dagur vann. Aftur var Dagur ekki í neinum vandræðum og fékk þægilegt endatafl með biskupaparið þar sem Dagur virtist geta reynt að pressa nokkuð lengi þó líklega ætti Vignir að halda jafnteflinu. Dagur gleymdi sér hinsvegar í vinningstilraunum, missti mikilvægt peð og Vignir náði að stýra skákinni í endatafl með mislitum biskupum sem var unnið á hann. Lokatölur 3,5-1,5 en hörkubarátta!
Vignir mætir því Ingvar í undanúrslitum 15. mars næstkomandi en þar mætast einnig Björn Þorfinnsson og Jón Kristinn Þorgeirsson. Ákveðin „kynslóða-einvígi“ þarna á ferð!
Skákskýringar voru í höndum Björns Ívars og Tinnu Kristínar.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Brynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.














